Gaddstaðaflatir: mekka sunnlenskra hestamanna: tillaga að skipulagi

Gaddstaðaflatir í Rangárþingi ytra hafa verið mótsstaður hestamanna frá árinu 1955. Þar hafa verið haldin landsmót árin 1986, 1994, 2004 og til stendur að halda þar landsmót 2008. Markmið verkefnisins er tvíþætt. Annars vegar að skipuleggja Gaddstaðaflati þannig að svæðið fullnægi þörfum knapa og mó...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Heiða Aðalsteinsdóttir 1981-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/7207
Description
Summary:Gaddstaðaflatir í Rangárþingi ytra hafa verið mótsstaður hestamanna frá árinu 1955. Þar hafa verið haldin landsmót árin 1986, 1994, 2004 og til stendur að halda þar landsmót 2008. Markmið verkefnisins er tvíþætt. Annars vegar að skipuleggja Gaddstaðaflati þannig að svæðið fullnægi þörfum knapa og mótsgesta á stórmótum. Hins vegar að stuðla að aukinni nýtingu svæðisins allt árið með bættu skipulagi. Verkefni þessu má skipta niður í þrjá hluta. Í fyrsta hluta þess er skýrt frá legu og mörkum athugunarsvæðis. Þar er einnig gripið niður á forsögu hestamannamóta á Íslandi til að dýpka skilning höfundar og lesanda á viðfangsefninu. Í öðrum hluta er fjallað um þær greiningar sem gerðar voru á Gaddstaðaflötum og niðurstöður þeirra. Í þriðja hluta verkefnisins er hönnunartillaga höfundar, sem er byggð á áðurnefndum greiningum, lögð fram. Markmið hönnunartillögu var ekki að kasta öllu því sem fyrir var, enda margt gott í eldra skipulagi. Markmiðið var heldur að koma auga á það sem betur mátti fara. Helstu niðurstöður verkefnisins voru eftirfarandi. Aðkoma að mótssvæði er óspennandi. Þar vantar sterka miðju. Möguleikar til stækkunar sýningarsvæðis eru uppurnir. Fjarlægðir milli tjaldsvæðis og mótssvæðis eru langar og annað svæði er illa nýtt. Hönnunartillaga byggir á því að skapa sterka aðkomu og miðju. Tjaldsvæði eru færð nær mótssvæði og leiksvæði komið fyrir í námunda við þau. Með þessu móti kýs fólk heldur að fara leiða sinna fótgangandi. Gróður er stóraukinn á svæðinu til að skapa skjól og rými. Reiðhöll með löglegum keppnisvelli er komið fyrir. Það eykur nýtingu á svæðinu allt árið. Tjaldsvæði og bílastæði hljóta nýjan tilgang sem beitarhólf milli stórmóta.