Orsök viðkomubrests hjá ritu (Rissa tridactyla) í þremur vörpum á Snæfellsnesi
Undanfarin ár hefur orðið vart við fækkun í stofni ritu Rissa tridactyla víða um land svo virðist sem fjöldi hafi staðið í stað á vestanverðu landinu. Lélegur varpárangur og fækkun varpa hefur einkum verið áberandi. Ástæða viðkomubrests virðist vera vegna fæðuskorts í sjónum við landið. Fyrri rannsó...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2010
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/7090 |
Summary: | Undanfarin ár hefur orðið vart við fækkun í stofni ritu Rissa tridactyla víða um land svo virðist sem fjöldi hafi staðið í stað á vestanverðu landinu. Lélegur varpárangur og fækkun varpa hefur einkum verið áberandi. Ástæða viðkomubrests virðist vera vegna fæðuskorts í sjónum við landið. Fyrri rannsóknir hafa einkum beinst að stofnmati og varpárangri en þörf er á að kanna hvað veldur viðkomubresti hjá ritu. Rannsókn þessa verkefnis fór fram á utanverðu Snæfellsnesi sumarið 2009 frá enduðum júní fram í miðjan ágúst. Athuganir voru gerðar í þremur ritubyggðum á Arnarstapa, í Svörtuloftum og í Keflavíkurbjargi og stofnrannsóknir voru gerðar í tveimur byggðum í Svalþúfubjargi og í Keflavíkurbjargi. Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull |
---|