Fyrstu fréttir af fötlun barns : upplifun foreldra

Í þessari ritgerð er fjallað um það þegar foreldrar fá fyrstu fréttir af því að barnið þeirra hefur frávik. Byrjað er á fræðilegri umfjöllun um kreppu og sorgarviðbrögð, því foreldrar geta upplifað áfall og sorg þegar í ljós kemur að barnið þeirra er fatlað. Eigindleg rannsókn var gerð, viðtöl voru...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gyðja Johannesen
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/680
Description
Summary:Í þessari ritgerð er fjallað um það þegar foreldrar fá fyrstu fréttir af því að barnið þeirra hefur frávik. Byrjað er á fræðilegri umfjöllun um kreppu og sorgarviðbrögð, því foreldrar geta upplifað áfall og sorg þegar í ljós kemur að barnið þeirra er fatlað. Eigindleg rannsókn var gerð, viðtöl voru tekin við 10 foreldra sem höfðu fengið fyrstu fréttir af fötlun barnsins síns þegar barnið var undir 4ra ára aldri. Helmingurinn fékk fréttirnar á fæðingardeild, hinn helmingurinn greindist seinna. Rannsóknin sýnir að upplifun þessara 10 foreldra er mjög ólík. Viðtöl voru líka tekin við greiningaraðila og þar kom fram ósk að gera vel við foreldra, en upplifun foreldra er að það er miklum tilviljunum háð hvort þau fá þann stuðning og þá þjónustu sem þau þurfa.