Það þarf tvo til að tala saman

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Máltaka barna er mjög mikilvægur þáttur í þroskaferli þeirra. Tilgangur þessa verkefnis er að skoða ítarlega máltökuferlið, hvernig börn læra málið, hvenær þau byrja að tala og hvað hægt er að gera ef um einhverja tal- eða málröskun sé a...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Ósk Bjarnadóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/669
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Máltaka barna er mjög mikilvægur þáttur í þroskaferli þeirra. Tilgangur þessa verkefnis er að skoða ítarlega máltökuferlið, hvernig börn læra málið, hvenær þau byrja að tala og hvað hægt er að gera ef um einhverja tal- eða málröskun sé að ræða. Við lærum flest að tala án mikilla erfiðleika en það er þó alltaf eitthvað um það að börn þurfi á ýmis konar aðstoð frá fagaðilum að halda ef um seinkaðan málþroska er að ræða. Tungumálið er okkur mikilvægur boðskiptamiðill og eitt helsta sérkenni mannsins, ég kem aðeins inn á það í þessu verkefni. Næst mun ég skoða hvar málið á upptök sín það er að segja heilann og skiptingu hans, einnig kem ég inn á hverjar afleiðingar málstols eru. Rauði þráðurinn í verkefninu er máltaka barna, hvernig fræðimenn eins og Skinner, Chomsky og Lenneberg hafa allir sína sýn á máltökuskeið barna. Málþroskinn er enn fremur skoðaður allt frá hjali til fimm ára aldurs. Ýmsir mál- og talgallar geta komið fram hjá börnum og í þessu verkefni verður komið inn á nokkra þeirra. Einnig verður málörvun tekin fyrir og mun höfundur varpa fram sínum skoðunum á henni. Eftir að hafa unnið þetta verkefni og lesið mér til um viðfangsefnið hefur skilningur minn á mikilvægi máltökuskeiðsins og málþroskans aukist mikið. Öll börn eiga rétt á að alast upp í því málumhverfi sem þau búa við og fullorðna fólkið er mikilvægur þáttur í því. Öll börn eiga rétt á að talað sé við þau, lesið og sungið fyrir þau og að þau séu jafnmikilvægar persónur og hinir fullorðnu.