Samanburður á keppnisframmistöðu aflimaðra sundmanna í flokkum S9 og S10 á Evrópumóti fatlaðra í sundi

Rannsókn þessi var framkvæmd í þeim tilgangi að skoða keppnisframmistöðu keppenda í flokkum S9 og S10 á Evrópumóti fatlaðra í sundi sem haldið var á Íslandi dagana 18.-24. október 2009. Skoðað var lokatími keppenda, lokatími og stig reiknuð eru út frá gildandi heimsmetum, rástími, snúningstími, taka...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigríður Bjarney Guðnadóttir, Sigurborg Jóna Björnsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/6563
Description
Summary:Rannsókn þessi var framkvæmd í þeim tilgangi að skoða keppnisframmistöðu keppenda í flokkum S9 og S10 á Evrópumóti fatlaðra í sundi sem haldið var á Íslandi dagana 18.-24. október 2009. Skoðað var lokatími keppenda, lokatími og stig reiknuð eru út frá gildandi heimsmetum, rástími, snúningstími, takalengd og takatíðni með tilliti til þess hvort þeir voru aflimaðir af hendi eða fæti. Rannsóknarspurningin sem við lögðum upp með er, er flokkunarkerfi IPC sanngjarnt gagnvart mismunandi aflimuðum einstaklingum sem keppa í sama flokki, í flokkum S9 og S10. Tilgáta okkar er sú að við teljum að það ætti ekki að vera marktækur munur á keppendum sem vantar á hendur eða fætur, þar sem að IPC telur að þeir eigi að vera í sama flokki samkvæmt rannsóknum þeirra og ætti flokkunarkerfið því að vera sanngjarnt. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að marktækur munur sé á milli þeirra keppenda sem vantar á hendur miðað við þá sem vantar á fætur í hluta af breytunum sem við skoðuðum. Þó að ekki sé marktækur munur á öllum breytunum má sjá augljósan kerfislægan mun þar sem að keppendur sem vantar á hendur koma yfirleitt betur út úr niðurstöðunum en þeir sem vantar á fætur. IPC vill samt meina að allir séu jafnir innan flokkanna og ætti því enginn munur að vera á milli þeirra sem vantar á hendi miðað við þá sem vantar á fót. Það væri áhugavert að skoða þessar breytur nánar og athuga betur hvort þessi munur gæti stafað af einhverju öðru. Þá mætti skoða aldur keppenda, reynslu þeirra í keppnum, hversu lengi þeir hafa æft sund og hversu mikið þeir æfa. This study was performed in order investigate the performance of the competitors in classes S9 and S10 in the European Paralympic swimming championship that was held in Iceland on October18th-24th 2009. Competitors’ dives, turns, final time, stroke length and stroke-rate were studied. The hypothesis that we started with was, is the IPC classification system fair to swimmers with one arm or one foot in classes S9 and S10? Our theory is that we don´t think that there should be any ...