Summary: | Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Á undanförnum árum hefur þjóðfélagið breyst mikið á Íslandi og hefur þróunin leitt til þess að konur fara fyrr út á vinnumarkaðinn eftir fæðingarorlof en áður. Sú krafa hefur verið uppi í samfélaginu að börn fari yngri í leikskóla. Vegna langs vinnutíma foreldra hefur þetta leitt til að mörg börn eru megnið af vökutíma sínum í leikskóla. Í vettvangsnámi okkar og starfi höfum við tekið eftir því, að starf með yngstu börnum í leikskólanum hefur oft verið vanmetið. Við vildum nota það tækifæri sem lokaritgerð er, til að dýpka þekkingu okkar á aldurshópnum. Það er áhugavert að skoða hvað örvun og góð umönnun hefur mikil áhrif á þroska ungra barna og hvað hún skiptir miklu máli fyrir barnið seinna meir á lífsleiðinni. Mikilvægt er að foreldrar og aðrir uppalendur geri sér grein fyrir hversu áhrifaríkir þessir grunnþættir hafa á uppeldi ungra barna. Eins og fram kemur dvelja börn stóran hluta dagsins í leikskólum og má leiða af því líkum, að hlutverk leikskólakennarans sé mikið þegar kemur að uppeldi og menntun barna. Þar af leiðandi er nauðsynlegt að í leikskólunum starfi vel menntað fólk sem geri sér grein fyrir hvernig þroski ungra barna á sér stað. Að það átti sig á að það er fyrirmynd barnanna og geti haft mikil áhrif á þroska barnsins, þannig að börnin verði góðir og nýtir þegnar í þjóðfélaginu.
|