Summary: | Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Ritgerð þessi er unnin sem lokaverkefni til B.Ed. - prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2007. Viðfangsefni ritgerðarinnar er hvernig hægt sé að nýta þjóðsögur til að efla grenndarvitund nemenda. Í fyrri hluta ritgerðarinnar er fjallað um grenndarnám og þjóðsögur. Innan grenndarfræðinnar koma fyrir hugtök eins og grenndarvitund, söguvitund og umhverfisvitund en þessar vitundir eru jafnfram undirstöður styrkrar sjálfsvitundar. Þjóðsögur eru stolt okkar Íslendinga og með lestri þeirra kynnumst við landi okkar og þjóð betur. Í seinni hluta ritgerðarinnar er þessum tveimur hugtökum, grenndarnámi og þjóðsögum, skeytt saman og út frá því eru unnið verkefni þar sem nemendur fá að njóta þjóðsagna út í náttúrunni. Við vinnslu ritgerðarinnar var rýnt í ótal margar fræðibækur og ýmsar þjóðsögur af Suðurnesjum lesnar. Farið var í vettvangsferðir og þjóðsögustaðir skoðaðir með það í huga að tengja grenndarnám og þjóðsögur. Niðurstöður voru þær að samþætting og tenging á þjóðsögum við grenndarkennslu er vel framkvæmanleg. Þjóðsögur glæða annars konar lífi í heimabyggðina. Með þeim er hægt að gera heimabyggðina áhugaverðari. Til þess að nemendur tengi sjálfa sig við fortíð og nútíð getur verið nauðsynlegt að nýta meira þjóðsögur úr heimabyggðinni og nota jafnframt umhverfið og náttúruna til þess. Að auki gefa grenndarnám og þjóðsögur kennurum meira tilefni til þess að vinna saman að skapandi verkefnum þar sem grenndarnám býður upp á samþættingu námsgreina.
|