Summary: | Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Barnavernd er heiti á eftirfarandi lokaverkefni til B.Ed-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2006. Verkefnið fjallar um barnavernd og í hverju barnavernd á Íslandi felst. Skoðuð eru lög og reglugerðir um barnavernd, greint er frá viðunandi uppeldisaðstæðum og jafnframt er greint frá í hverju vanræksla getur verið fólgin. Sagt er frá skipan barnaverndarmála og greint er frá barnalögum, lýðheilsu, ung- og smábarnavernd ásamt lögum um leikskóla. Í verkefninu er sagt frá hvernig barnavernd er háttað á heilsugæslustöðvum og fjallað er um reglubundin þroskapróf fyrir 3 ½ og 5 ½ árs börn. Í framhaldi af því er fjallað um til hvaða úrræða er hægt að grípa ef grunur vaknar um fötlun eða þroskafrávik, og einnig er sagt frá snemmtækri íhlutun. Í verkefninu er fjallað um hvernig leikskólinn kemur að barnavernd, um mikilvægi leiksins fyrir börn, ásamt því að fjalla um tvær kannanir sem til eru fyrir leikskóla, en það eru HLJÓM-2 og Könnun Gerd Strand. Í þjóðfélaginu hefur átt sér stað á síðustu árum vitundarvakning sem lítur að börnum og barnavernd, réttindum barna og skyldum foreldra og skyldu hins almenna borgara til að greina frá grunsemdum sínum um vanrækslu barna.
|