Summary: | Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessari ritgerð er fjallað um starfsánægju í leikskólum. Komið er inn á þróun hugmynda og kenninga sem tengjast viðfangsefninu auk þess sem teknir eru fyrir afmarkaðir þættir sem taldir eru stuðla að og viðhalda starfsánægju. Til að kanna hvað þætti starfsfólk leikskóla leggur áherslu á með tilliti til starfsánægju var gerð eigindleg rannsókn í formi rýnihópa. Settir voru saman þrír hópar frá þremur leikskólum við utanverðan Eyjafjörð. Þátttakendur voru alls níu og áttu einstaklingar innan hvers hóps það sameiginlegt að starfsheiti var það sama, það er leikskólastjórar, leikskólakennarar og leiðbeinendur. Þessi skipting hópanna var gerð með það að markmiði að kanna hvort mismunar gætti varðandi áhersluþætti eftir því hvaða starfi viðkomandi gegndi. Einnig var spurningalisti lagður fyrir allt starfsfólk þeirra leikskóla sem þátt tóku í rannsókninni með það að markmiði að styðja við niðurstöður úr rýnihópunum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær helstar að starfsfólk taldi starfsánægju mjög mikilvæga og skipta sköpun fyrir það starf sem fram færi í leikskólum. Ýmsir áhrifaþættir voru taldir stuðla að starfsánægju og voru opin samskipti og góð samvinna ofarlega í huga flestra. Leikskólastjóri var einnig talin hafa mikil áhrif sem og þær stjórnunaraðferðir sem ríktu innan leikskólanna. Ekki var hægt að greina ákveðinn áherslumun eftir starfsheiti fólks en svo virtist sem persónulegar upplifanir hvers og eins hefðu meira vægi.
|