Betur má ef duga skal : umhverfismennt í grunnskólum
Verkefnið er lokað Eftirfarandi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2006. Viðfangsefni ritgerðarinnar er umhverfismennt og hvernig unnið er með hana í grunnskólum landsins. Ritgerðin skiptist í fimm meginkafla. Fyrsti kafli fjallar um...
Main Authors: | , |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2006
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/549 |
Summary: | Verkefnið er lokað Eftirfarandi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2006. Viðfangsefni ritgerðarinnar er umhverfismennt og hvernig unnið er með hana í grunnskólum landsins. Ritgerðin skiptist í fimm meginkafla. Fyrsti kafli fjallar um umhverfismennt, þróun hennar á Íslandi og samstarf um umhverfismál við önnur lönd í heiminum. Teknar eru fyrir breytingar í umhverfismennt í Aðalnámskrám grunnskóla árin 1989 og 1999 og hvert hlutverk siðfræði í umhverfismennt er. Í lok kaflans eru útlistaðar námskenningar og kennsluaðferðir sem kennarar geta stuðst við í kennslu í umhverfismennt. Viðfangsefni annars kafla er umhverfisvitund og er henni þar gerð ítarleg skil. Því næst er fjallað um mikilvægi umhverfisfræðslu og náttúrutúlkunar í átt að bættri umhverfisvitund. Að lokum eru settar fram hugmyndir höfunda um leiðir til að efla umhverfisvitund nemenda. Í þriðja kafla ritgerðarinnar er umfjöllun um Grænfánaverkefnið sem er alþjóðlegt verkefni á vegum samtakanna Foundation for Environmental Education (FEE). Verkefninu er ætlað að auka umhverfismennt og umhverfisstefnu í skólum og er skólum veittur fáni sem nefnist Grænfáni í viðurkenningarskyni fyrir að uppfylla skilyrði verkefnisins. Fjórði kafli er samanburður á tveimur grunnskólum í Eyjafirði sem taka þátt í Grænfánaverkefninu. Annar skólinn er Grunnskólinn í Hrísey sem hlotið hefur Grænfánann en hinn er Síðuskóli á Akureyri sem vinnur að því að fá fánann. Í fimmta og síðasta kafla ritgerðarinnar er að finna hugmyndabanka höfunda að verkefnum sem nýta má við kennslu í umhverfismennt í grunnskólum. Það er niðurstaða höfunda að mikilvægt sé að auka kennslu í umhverfismennt í íslenskum grunnskólum til þess að efla vitund nemenda um umhverfi þeirra. Ef ekkert er aðhafst í umhverfismálum verða umhverfisvandmál einungis stærri og fleiri og því ætti að hefja markvisst starf í umhverfisfræðslu strax í grunnskóla. |
---|