Ráðningar og starfsmannaval á meðal skipulagsheilda á Akureyri og í Reykjavík

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessu verkefni er fjallað um ráðningar og starfsmannaval hjá skipulagsheildum á Akureyri og í Reykjavík. Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á þá þætti í innra og ytra umhverfi skipulagsheildanna sem hafa áhrif á ráðningar og starfs...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Rósa Aðalsteinsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/533
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessu verkefni er fjallað um ráðningar og starfsmannaval hjá skipulagsheildum á Akureyri og í Reykjavík. Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á þá þætti í innra og ytra umhverfi skipulagsheildanna sem hafa áhrif á ráðningar og starfsmannaval og reyna að sanna eða afsanna eftirfarandi tilgátu: Það er algengara að skipulagsheildir á Akureyri noti óformlegri aðferðir þegar leitað er að umsækjendum fyrir störf heldur en sömu/sambærilegar skipulagsheildir í Reykjavík. Unnin var fræðileg greining á meginþáttum mannauðsstjórnunar, einkum á ráðningum og starfsmannavali, og lykilhugtök skilgreind til að brjóta niður tilgátuna og leggja grunn að markvissri greiningu á sannleiksgildi hennar. Í þeirri rannsókn sem hér var gerð voru tekin viðtöl við aðila sem hafa yfirumsjón með ráðningum hjá fjórum skipulagsheildum á Akureyri og fjórum í Reykjavík. Val á skipulagsheildum miðaðist við að starfsmenn væru fimmtán eða fleiri. Viðtölin voru tekin á tímabilinu 10.desember 2004 til 5.janúar 2005. Helsta niðurstaða rannsóknarinnar er að það er ekki algengara að skipulagsheildir á Akureyri noti óformlegri aðferðir þegar leitað er að umsækjendum fyrir störf heldur en sömu/sambærilegar skipulagsheildir í Reykjavík. Akureyskar skipulagsheildir standa ekki með öðrum hætti að ráðningum heldur en sömu/sambærilegar skipulagsheildir í Reykjavík. Lykilorð:  Mannauðsstjórnun  Ráðningar  Starfsmannaval  Skipulagsheild  Akureyri  Reykjavík