Greining á þorskverði

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Rannsóknin fjallar um mismun á verði á slægðum þorski, seldum á markaði eða í beinni sölu eftir því hvar og hvernig hann er veiddur. Aðferðin sem notuð er við rannsóknina er fervikagreining eða Analysis of Variance (ANOVA), tveggja þátta...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóna Kristín Kristinsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/520
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Rannsóknin fjallar um mismun á verði á slægðum þorski, seldum á markaði eða í beinni sölu eftir því hvar og hvernig hann er veiddur. Aðferðin sem notuð er við rannsóknina er fervikagreining eða Analysis of Variance (ANOVA), tveggja þátta dreifigreining með samsvörun og einnig er einföld þáttagreining notuð. Greiningin nær yfir fimm ára tímabil, frá janúar 2000 til janúar 2005 og er athugað hvort það er marktækur munur á verði á slægðum þorski seldum á fiskmarkaði og í sölu beint til verkenda, þá er einnig kannað hvort það er munur eftir því með hvernig veiðarfærum þorskurinn er veiddur. Munur á þorskverði er einnig kannaður eftir landsvæðum. Það sem aðallega er verið að fjalla um er hver breytingin hefur verið og hvort hún sé mikil. Fjallað er aðeins um helstu veiðarfæri og hvernig þau eru notuð, einnig er fjallað lauslega um þorskveiðar og reglur um þær. Athygli vekur að verð á þorski hefur verið að lækka og er fjallað aðeins um það og hvað gæti valdið því. Þorskverð á fiskmarkaði er hærra en í beinni sölu en sá munur er þó að verða minni eftir því sem árin líða. Landsvæði skipta líka máli, í greiningunni er marktækur munur á verði eftir því hvar þorskurinn er seldur. Lykilorð: Fervikagreining Fiskmarkaðir Landsvæði Veiðarfæri Þorskur