Að vera döff barn heyrandi föður sem notar ekki táknmál: Upplifun döff karlmanna á Íslandi

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna upplifun döff karlmanna af því að vera döff barn heyrandi föður sem notar ekki táknmál, með sérstakri áherslu á hvernig þessi reynsla hefur mótað sjálfsmynd þeirra. Rannsóknin byggir á fyrirbærafræðilegri nálgun Vancouver-skólans þar sem tekin voru viðtöl við...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristinn Arnar Diego 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2025
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/1946/49463
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að kanna upplifun döff karlmanna af því að vera döff barn heyrandi föður sem notar ekki táknmál, með sérstakri áherslu á hvernig þessi reynsla hefur mótað sjálfsmynd þeirra. Rannsóknin byggir á fyrirbærafræðilegri nálgun Vancouver-skólans þar sem tekin voru viðtöl við sex döff karlmenn sem eiga það sameiginlegt að hafa alist upp með heyrandi föður sem notaði ekki táknmál. Rannsóknin byggir á fyrri rannsóknarvinnu höfundar á sviði fötlunarfræða sem sýndi fram á veika stöðu táknmáls þrátt fyrir formlega lagalega viðurkenningu og hvernig döff einstaklingar upplifa sig oft í spennu milli döff og heyrandi menningarheima. Þessi rannsókn dýpkar þá þekkingu með því að beina sjónum að fjölskyldutengslum og er mikilvægt framlag til fræðasviðsins þar sem fáar fyrri rannsóknir hafa beint sjónum að hlutverki feðra í lífi döff barna. Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar byggir á kenningum um tengslamyndun, menningarlegt sjónarmið á heyrnarleysi, gagnrýna fötlunarfræðilega nálgun, sjálfsmynd og fjölskyldukerfi, með áherslu á fyrirbærafræðilegan hugtakaramma. Niðurstöður leiða í ljós fjögur meginþemu: (1) samskiptarof milli döff sona og heyrandi feðra, (2) hlutverk systkina sem spegla tengsl við föður, (3) móðirin sem brú milli tveggja heima, og (4) umbreytingarferli þar sem viðmælendur finna styrk í döff samfélagi. Rannsóknin varpar ljósi á hvernig fjarvera sameiginlegs máls hefur djúpstæð áhrif á tengslamyndun og þróun sjálfsmyndar. Niðurstöðurnar hafa mikilvæga þýðingu fyrir fjölskyldumeðferðarfræði, þar sem þær sýna að virk táknmálsnotkun allra fjölskyldumeðlima er grundvallarforsenda heilbrigðra tengsla við döff börn. Framlag rannsóknarinnar felst í dýpri skilningi á mikilvægi máls fyrir fjölskyldumeðferð. Lykilorð: Döff, feður, fjölskylda, fjölskyldumeðferð, menning, samskipti, tengsl. The aim of this study is to explore the experiences of Deaf men of being a Deaf child of a hearing father who does not use sign language, with a particular focus on how these experiences have shaped their ...