Tónlist sem tækifæri í sálgæslu: Starfendarannsókn í eldriborgarastarfi

Verkefni þetta er lokaverkefni til Mag.theol. prófs í guðfræði við Háskóla Íslands. Meginmarkmið verkefnisins er að skoða hvernig ég get bætt mína starfshætti við að nota tónlist við sálgæslu. Verkefni þetta er svokölluð starfendarannsókn þar sem ég mun skoða og meta tónlistarflutning minn á hjúkrun...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Benedikt Sigurðsson 1975-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2025
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/1946/49436
Description
Summary:Verkefni þetta er lokaverkefni til Mag.theol. prófs í guðfræði við Háskóla Íslands. Meginmarkmið verkefnisins er að skoða hvernig ég get bætt mína starfshætti við að nota tónlist við sálgæslu. Verkefni þetta er svokölluð starfendarannsókn þar sem ég mun skoða og meta tónlistarflutning minn á hjúkrunarheimilum og skoða út frá mér sjálfum hvernig mér finnst mér takast til og þá hvað mér finnst virka og hvað ekki. Þannig mun ég sýna fram á hvernig ég næ að afmarka þá þætti sem mér finnst virka best og nýta mér þá í starfi í framtíðinni. Einnig mun ég greina og meta aðrar rannsóknir sem hafa sýnt fram á virkni tónlistar á aldraða og heilabilaða. Ég mun einnig greina og meta misjafnar nálganir á tónlistarflutninginn og þá hvernig mér finnst munurinn vera á að leika undir á gítar annarsvegar og svo hins vegar á harmonikku. Einnig mun ég ígrunda og meta muninn á lagavali, tóntegundum laga og hvort, og hvernig munur, sé á lögum hvort að þau séu í dúr eða moll. Einnig mun ég skoða misjöfn rými og þá hvernig uppröðun í rými sé hægt að skapa betra utanumhald, meiri nánd og betra flæði. Ég mun skoða samþættingu trúarlegrar nálgunar í gegnum tónlist og einnig mun ég skoða hvaða þættir auka öryggi rannsakanda á vettvangi fremur en aðrir. Að síðustu mun ég draga saman niðurstöður mínar sem ég ætla mér svo að nota í starfi mínu sem prestur. Meginmarkmið mitt með þessari rannsókn er að reyna að fá þau verkfæri í hendurnar sem ég get nýtt mér í sálgæslu gegnum tónlist. Í rannsókninni er sýnt fram á hverjar séu þær aðferðir sem mér finnst virka best og með hvaða hætti get ég nýtt mér þær. This project is a final project for Mag. theol. degree in theology at the University of Iceland. The main goal of the project is to examine how I can improve my practice of using music in pastoral care. This project is a so-called staff study where I will examine and evaluate my musical performance in the nursing home and examine from myself how I feel I am coping and then what I think works and what doesn't. In this way, I will demonstrate how ...