Ekki benda á mig „Hversu vel uppfyllir raunverulegt aðgengi að meðferðarúrræðum fyrir börn með fjölþættan vanda á Íslandi þær skuldbindingar sem settar hafa verið fram með opinberum lögum og stefnumótun?“
Börn með fjölþættan vanda þurfa samþætta, sérhæfða og samfellda þjónustu frá mörgum kerfum samfélagsins. Þrátt fyrir skýra stefnumörkun stjórnvalda og lagalegar skuldbindingar benda opinber gögn og álit stofnana til þess að framkvæmd þjónustunnar nái ekki að uppfylla sett markmið. Þetta getur haft á...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Bachelor Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2025
|
Subjects: | |
Online Access: | https://hdl.handle.net/1946/49365 |
Summary: | Börn með fjölþættan vanda þurfa samþætta, sérhæfða og samfellda þjónustu frá mörgum kerfum samfélagsins. Þrátt fyrir skýra stefnumörkun stjórnvalda og lagalegar skuldbindingar benda opinber gögn og álit stofnana til þess að framkvæmd þjónustunnar nái ekki að uppfylla sett markmið. Þetta getur haft áhrif á aðgengi, samfellu og gæði þeirrar þjónustu sem börn fá í raun. Tilgangur ritgerðarinnar er að greina hvort raunverulegt aðgengi að meðferðarúrræðum standist þær kröfur sem fram koma í lögum og opinberri stefnumótun. Byggt er á heimildagreiningu og opinberum skýrslum. Niðurstöður sýna skort á samræmi í framkvæmd, óljósa ábyrgðarskiptingu og takmarkað aðgengi að úrræðum. Lagt er til að efla samhæfingu, skýra ábyrgð og tryggja markvissari þjónustu við börn. |
---|