Áhrif efnahagskreppunnar á markaðsstarf Icelandair og Iceland Express
Í ritgerðinni er fjallað um áhrif efnahagskreppunnar á þau tvö íslensku flugfélög sem eru með áætlunarflug til og frá Íslandi. Leitast er eftir að varpa ljósi á hvort að fall bankanna árið 2008 hafi orðið þess valdandi að flugfélögin hafi þurft að breyta markaðsáætlunum sínum til þess að mæta breyti...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2010
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/4919 |
Summary: | Í ritgerðinni er fjallað um áhrif efnahagskreppunnar á þau tvö íslensku flugfélög sem eru með áætlunarflug til og frá Íslandi. Leitast er eftir að varpa ljósi á hvort að fall bankanna árið 2008 hafi orðið þess valdandi að flugfélögin hafi þurft að breyta markaðsáætlunum sínum til þess að mæta breytingum á aðstæðum í þjóðfélaginu. Framkvæmd voru viðtöl við forsvarsmenn flugfélaganna tveggja, Icelandair og Iceland Express, og í framhaldinu voru notaðar þrjár kenningar til að greina niðurstöður viðtalanna. Mikilvægi þess að flugfélögin kæmust óhult í gengum verstu hindranir efnahagskreppunnar á Íslandi var mikilvægt fyrir þjóðina í heild vegna landfræðilegri legu landsins í miðju Atlantshafinu því að ef að flugumferð legðist af þá yrðu Íslendingar að leita annarra leiða til að komast til og frá landinu. Niðurstaðan var sú að efnahagskreppan hafði áhrif á markaðsstarf flugfélaganna tveggja þar sem breyta þurfti nálgun þeirra við markhópa sína. Nýjum auglýsingaaðferðum var beitt sem og að nýir markhópar litu dagsins ljós. |
---|