Summary: | Markmið rannsóknarinnar var að kanna einkenni kulnunar meðal háskólakennara sem og að skoða áhrif starfsumhverfis og starfsaðstæðna á einkenni kulnunar. Auk bakgrunnsbreyta (kyns, aldurs og fjárhagsstöðu) voru skoðaðir fjórir áhrifaþættir sem fyrri rannsóknir benda til að gætu verið áhættuþættir kulnunar, en hafa ekki áður verið kannaðir meðal íslenskra háskólakennara: Magn vinnu, togstreita milli starfsþátta (s.s., milli tíma og orku sem fer í rannsóknir, kennslu og aðra starfsþætti), upplifuð sanngirni innan stofnunar og jafnvægi vinnu og einkalífs. Netkönnun var lögð fyrir allt akademískt félagsfólk í Félagi háskólakennara (FH), Félagi háskólakennara á Akureyri (FHA) og Félagi prófessora við ríkisháskóla (FPR). Svör bárust frá 505 þátttakendum (47% svarhlutfall) og tilgátur prófaðar með stigveldisaðhvarfsgreiningu og óháðu t-prófi. Heilt yfir sýndu niðurstöðurnar að kulnun er verulegt vandamál innan háskólasamfélagsins; 40,6% þátttakenda mældust með mikil eða mjög mikil einkenni kulnunar. Líkt og spáð var mældust konur með meiri einkenni kulnunar en karlar. Einkenni kulnunar voru meiri á meðal þeirra sem voru yngri sem og þeirra sem glíma við erfiða fjárhagsstöðu. Eins og var spáð tengdist aukið magn vinnu auknum einkennum kulnunar. Því var einnig spáð, og það staðfest, að meiri togstreita starfsþátta tengdist meiri einkennum kulnunar. Enn fremur gerðu tilgátur ráð fyrir því að aukið ójafnvægi milli vinnu og einkalífs og upplifun á ósanngirni innan stofnunarinnar spáði fyrir um meiri einkenni kulnunar. Þær tilgátur voru staðfestar. Sömuleiðis sýndi stigveldis- aðhvarfsgreiningin að þrjár síðast nefndu breyturnar sem taka til misræmis eða togstreitu á vinnustaðnum (togstreita starfsþátta, upplifuð sanngirni og jafnvægi vinnu og einkalífs) höfðu marktæk áhrif á kulnunareinkenni þegar stjórnað hafði verið fyrir öllum öðrum breytum. Það líkan hafði einnig besta forspárgildið líkt og spáð var. Þessum þáttum ætti því að gefa sérstakan gaum í frekari rannsóknum og aðgerðum háskólanna vegna kulnunar. Niðurstöðurnar ...
|