Summary: | Þessi ritgerð fjallar um möguleika á innleiðingu smárra sorpbrennslustöðva á Íslandi með áherslu á hönnun, rekstur og umhverfisáhrif. Með auknum áskorunum í sorphirðu á heimsvísu stendur Ísland frammi fyrir vandamálum sem tengjast útflutningi sorps til Svíþjóðar til brennslu og takmarkaðri aðstöðu til urðunar. Í ritgerðinni er metin fyrirhuguð uppsetning á sorpbrennslustöð með afkastagetu upp á 2.500 tonn á ári á athafnasvæði Sorpstöðvarinnar Strönd á Rangárvöllum. Stöðin er þróuð af finnska tækniþróunarfyrirtækinu FerroPower OY í Orimattila í Finnlandi. Sorporka ehf. íslenskt fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í að finna lausnir á sorphirðuvandamálum stærri og minni sveitarfélaga á Íslandi, hefur í samstarfi við FerroPower unnið að því að aðlaga stöðina að íslenskum aðstæðum. Mun Sorporka fjármagna og reka stöðina í nánu samstarfi við starfsmenn Sorpstöðvarinnar Strönd. Stöðin, sem hönnuð er til að brenna sorp og nýta varmaorku til framleiðslu á heitu vatni, býður upp á sveigjanleika í stærð og getur unnið sjálfstætt í allt að viku án eftirlits, auk þess sem hún uppfyllir strangar umhverfiskröfur Evrópusambandsins. Ritgerðin inniheldur greiningu á sögulegri og núverandi þróun sorpbrennslu á Íslandi í samanburði við önnur Norðurlönd, með áherslu á kosti lítilla, dreifðra stöðva. Aðaláherslur ritgerðarinnar eru meðal annars samsetning sorps, orkunýting, og tækninýjungar eins og varmaskipti og hreinsibúnaður fyrir útblástur. Einnig er metin orkuvinnsla stöðvarinnar og áhrif hennar á sjálfbæra sorpstjórnun Íslands. Niðurstöður benda til þess að innleiðing slíkrar sorpbrennslustöðvar gæti dregið verulega úr þörf á urðun, minnkað losun gróðurhúsalofttegunda og aukið nýtingu endurnýjanlegrar orku fyrir nærsamfélög. Þessi ritgerð dregur fram möguleika og kosti þess að nýta nútímalega brennslutækni til að mæta þörfum Íslands í sorpstjórnun og orkunýtingu á sjálfbæran hátt. This thesis explores the potential for implementing small scale waste-to-energy (WtE) incineration plants in Iceland, focusing on design, operation, ...
|