Summary: | Í þessari rannsókn voru skoðaðar aðstæður einstæðra foreldra á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði hjá velferðarsviði Reykjavíkur. Rannsóknin var unnin í samstarfi við velferðarsvið Reykjavíkurborgar og beindist fyrst og fremst að því að kanna aðstæður einstæðra foreldra sem bíða eftir félagslegu leiguhúsnæði í Reykjavík. Sérstök áhersla var lögð á að skoða hvernig foreldrarnir búa á meðan þeir bíða eftir félagslegu leiguhúsnæði, hvaða þjónustu þeir fá fyrir sig og börnin sín innan og utan velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og áhrif húsnæðisóöryggis á líðan þeirra. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á áskoranir einstæðra foreldra sem bíða eftir félagslegu leiguhúsnæði ásamt því að skoða hvernig borgin gæti bætt þjónustuna og stutt þá betur á meðan þeir eru á biðlista. Með því að gefa þessum foreldrum tækifæri til þess að láta rödd sína heyrast var vonast eftir því að draga fram hvernig bættar húsnæðisaðstæður gætu haft jákvæð áhrif á lífsgæði þessa hóps. Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir við gerð rannsóknarinnar þar sem tekin voru viðtöl við fimm foreldra á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði. Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til þess að einstæðir foreldrar á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði upplifðu verulegt húsnæðisóöryggi sem hafði neikvæð áhrif á andlega líðan, lífsgæði og stöðugleika barna þeirra. Niðurstöður bentu jafnframt til þess að foreldrarnir vildu öruggt, rúmgott húsnæði á vel staðsettu svæði sem myndi tryggja fjárhagslegt öryggi og bæta framtíðarhorfur fyrir fjölskyldur þeirra. Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar má álykta að Reykjavíkurborg þurfi að auka aðgengi að tímabundnu húsnæði á meðan bið stendur ásamt því að auka félagslegan og fjárhagslegan stuðning til þeirra sem eru á biðlista. Auk þess mætti þróa og innleiða sérstök úrræði fyrir einstæða foreldra til að stuðla að því að biðtími hafi sem minnst neikvæð áhrif á fjölskyldulíf og andlega líðan. Lykilorð: félagslegt leiguhúsnæði, einstæðir foreldrar, velferðarsvið Reykjavíkurborgar, húsnæðisóöryggi, lífsgæði. ...
|