„Maður missir bara von og ef maður missir von, hvað er þá eftir?": Aðstæður einstæðra foreldra sem bíða eftir félagslegu leiguhúsnæði í Reykjavík.

Í þessari rannsókn voru skoðaðar aðstæður einstæðra foreldra á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði hjá velferðarsviði Reykjavíkur. Rannsóknin var unnin í samstarfi við velferðarsvið Reykjavíkurborgar og beindist fyrst og fremst að því að kanna aðstæður einstæðra foreldra sem bíða eftir félagslegu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sandra Björt Árnadóttir 2000-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/1946/48744
Description
Summary:Í þessari rannsókn voru skoðaðar aðstæður einstæðra foreldra á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði hjá velferðarsviði Reykjavíkur. Rannsóknin var unnin í samstarfi við velferðarsvið Reykjavíkurborgar og beindist fyrst og fremst að því að kanna aðstæður einstæðra foreldra sem bíða eftir félagslegu leiguhúsnæði í Reykjavík. Sérstök áhersla var lögð á að skoða hvernig foreldrarnir búa á meðan þeir bíða eftir félagslegu leiguhúsnæði, hvaða þjónustu þeir fá fyrir sig og börnin sín innan og utan velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og áhrif húsnæðisóöryggis á líðan þeirra. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á áskoranir einstæðra foreldra sem bíða eftir félagslegu leiguhúsnæði ásamt því að skoða hvernig borgin gæti bætt þjónustuna og stutt þá betur á meðan þeir eru á biðlista. Með því að gefa þessum foreldrum tækifæri til þess að láta rödd sína heyrast var vonast eftir því að draga fram hvernig bættar húsnæðisaðstæður gætu haft jákvæð áhrif á lífsgæði þessa hóps. Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir við gerð rannsóknarinnar þar sem tekin voru viðtöl við fimm foreldra á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði. Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til þess að einstæðir foreldrar á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði upplifðu verulegt húsnæðisóöryggi sem hafði neikvæð áhrif á andlega líðan, lífsgæði og stöðugleika barna þeirra. Niðurstöður bentu jafnframt til þess að foreldrarnir vildu öruggt, rúmgott húsnæði á vel staðsettu svæði sem myndi tryggja fjárhagslegt öryggi og bæta framtíðarhorfur fyrir fjölskyldur þeirra. Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar má álykta að Reykjavíkurborg þurfi að auka aðgengi að tímabundnu húsnæði á meðan bið stendur ásamt því að auka félagslegan og fjárhagslegan stuðning til þeirra sem eru á biðlista. Auk þess mætti þróa og innleiða sérstök úrræði fyrir einstæða foreldra til að stuðla að því að biðtími hafi sem minnst neikvæð áhrif á fjölskyldulíf og andlega líðan. Lykilorð: félagslegt leiguhúsnæði, einstæðir foreldrar, velferðarsvið Reykjavíkurborgar, húsnæðisóöryggi, lífsgæði. ...