Upplifun fagaðila í alþjóðateymum sveitarfélaga á áfallatengdri kulnun: „Ég var orðin það aftengd öllu að ég var hætt að geta sýnt einhverja samkennd“

Fagaðilar sem starfa í alþjóðateymum á vegum sveitarfélaga eru í sérstökum áhættuhópi á að upplifa einkenni áfallatengdrar kulnunar út frá þeim þjónustuhópi sem þeir sinna og vegna eðlis starfa þeirra. Áfallatengd kulnun lýsir þeim fórnarkostnaði sem fylgir því að sinna tilfinningalegum sársauka ann...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Valgerður Svavarsdóttir 1998-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/1946/48734
Description
Summary:Fagaðilar sem starfa í alþjóðateymum á vegum sveitarfélaga eru í sérstökum áhættuhópi á að upplifa einkenni áfallatengdrar kulnunar út frá þeim þjónustuhópi sem þeir sinna og vegna eðlis starfa þeirra. Áfallatengd kulnun lýsir þeim fórnarkostnaði sem fylgir því að sinna tilfinningalegum sársauka annarra en geta einkenni hennar verið margþætt og haft djúpstæð áhrif á fagaðila, bæði í starfi þeirra sem og í persónulegu lífi. Markmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun fagaðila á áfallatengdri kulnun og hvaða mögulegu áhrif hún getur haft á þá, bæði í og utan vinnu. Auk þess var lögð áhersla á að kanna hvaða aðferðir fagaðilar nota til að koma í veg fyrir eða draga úr einkennum áfallatengdrar kulnunar og stuðla að vellíðan. Rannsókn þessi var eigindleg og voru tekin níu hálfstöðluð viðtöl við fagaðila sem starfa í alþjóðateymum Reykjavíkurborgar og Hafnafjarðarbæjar. Helstu niðurstöður benda til þess að fagaðilar sem starfa í alþjóðateymum upplifi allt frá litlum sem engum einkennum áfallatengdrar kulnunar upp í að áfallasögur þjónustunotenda þeirra hafi alvarleg og djúpstæð áhrif á þá, bæði í og utan vinnu. Greindu viðmælendur margir hverjir frá persónulegum áhættuþáttum sem og þáttum er snúa að eðli starfsins sem geta gert þá viðkvæmari fyrir þróun áfallatengdrar kulnunar. Jafnframt sýna niðurstöður fram á að fagaðilar finni bæði fyrir jákvæðum og neikvæðum breytingum á hvernig þeir upplifa sjálfan sig, heiminn og aðra út frá starfi sínu. Þær meginaðferðir sem niðurstöður rannsóknarinnar benda til að fagaðilar séu að nýta sér og telja vera hvað mikilvægastar til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif í starfi þeirra eru að setja sér skýr mörk, fá félagslegan stuðning bæði í og utan vinnu og að fara reglulega í handleiðslu. Niðurstöður sýna fram á að þörf sé á frekari stuðningi við fagfólk sem sinnir þessum málaflokki og að bæði því og stofnunum þeirra sé veitt frekari fræðsla um áhrif og afleiðingar starfsins. Lykilorð: Áfallatengd kulnun, samkenndarþreyta, fagaðilar, alþjóðateymi sveitarfélaga, inngrip, forvarnir. ...