„Vettvangsstarf er lífsnauðsynlegur hlekkur í stuðningskerfi varðandi börn“ : Sýn fagfólks á vettvangsstarf félagsmiðstöðva í Reykjavík

Vettvangsstarf félagsmiðstöðva hefur verið í mikilli þróun undanfarin ár og hefur starfsemin aukist til muna með tilkomu Flotans flakkandi félagsmiðstöðvar. Vettvangsstarfið hefur ekki verið rannsakað áður á Íslandi svo vitað sé til og er því er áhugavert beina sjónum að vettvangsstarfinu í þessari...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Andrea Marel Þorsteinsdóttir 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/1946/48615
Description
Summary:Vettvangsstarf félagsmiðstöðva hefur verið í mikilli þróun undanfarin ár og hefur starfsemin aukist til muna með tilkomu Flotans flakkandi félagsmiðstöðvar. Vettvangsstarfið hefur ekki verið rannsakað áður á Íslandi svo vitað sé til og er því er áhugavert beina sjónum að vettvangsstarfinu í þessari rannsókn. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvort og þá hvernig starfsfólk í vettvangsstarfi félagsmiðstöðva og samstarfsaðilar upplifa vettvangsstarfið ná að uppfylla markmið sín, að styðja við forvarnir og efla verndandi þætti í lífi barna og unglinga í borginni. Þær rannsóknarspurningar sem leitast er við að svara miða að því að kalla fram sýn viðmælenda á hlutverk vettvangsstarfs félagsmiðstöðva í forvörnum gegn áhættuhegðun unglinga, kanna hvernig inntak og starfhættir í vettvangsstarfi birtast í orðum viðmælenda og kanna hvaða færni, eiginleikar og þekking er mikilvæg í vettvangsstarfi að þeirra mati. Rannsóknin er eigindleg og notast var við eigindleg viðtöl. Leitast er við að ná fram sýn fagfólks með ólíka reynslu af vettvangsstarfi félagsmiðstöðva. Í gagnasöfnun fyrir rannsóknina voru tekin viðtöl við fjóra félagsmiðstöðvastarfsmenn sem hafa mikla reynslu af vettvangsstarfi félagsmiðstöðva í Reykjavík. Einnig voru tekin viðtöl við lögreglumann og félagsráðgjafa sem hafa reynslu af þátttöku í vettvangsstarfi félagsmiðstöðva á vettvangi auk þess að hafa reynslu af ýmiskonar samstarfi við félagsmiðstöðvastarfsmenn í tengslum við vettvangsstarf. Þá var starfsfólki félagsmiðstöðva í vettvangsstarfi fylgt eftir á vettvangi og vettvangsnótur höfundar nýttar sem hluti af undirbúningi eða forrannsókn. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að vettvangsstarf félagsmiðstöðva í Reykjavík sé lágþröskuldaþjónusta sem geti stutt við verndandi þætti í lífi barna og unglinga í viðkvæmri stöðu og geti mögulega greitt leið þeirra að frekari farsældarþjónustu. Einnig má merkja að viðmælendur telja þátttöku sína í vettvangsstarfi félagsmiðstöðva hafa veitt þeim nýja þekkingu sem nýtist þeim áfram í starfi í þágu ...