Krísustjórnun: Rýming Grindavíkur 10. nóvember 2023. Upplifun og viðbrögð Grindvíkinga.

Þann 10. nóvember 2023 stóðu íbúar Grindavíkur frammi fyrir óvenjulegri áskorun þegar þeim var skipað að yfirgefa heimili sín vegna yfirvofandi eldgosahættu. Þessi atburður hefur reynst Grindvíkingum mikil áskorun og varpar ljósi á mikilvægi skilvirkrar krísustjórnunar í landinu. Aðstæður í Grindaví...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hólmfríður Sigurðardóttir 1997-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/1946/48587
_version_ 1821532577290256384
author Hólmfríður Sigurðardóttir 1997-
author2 Háskóli Íslands
author_facet Hólmfríður Sigurðardóttir 1997-
author_sort Hólmfríður Sigurðardóttir 1997-
collection Skemman (Iceland)
description Þann 10. nóvember 2023 stóðu íbúar Grindavíkur frammi fyrir óvenjulegri áskorun þegar þeim var skipað að yfirgefa heimili sín vegna yfirvofandi eldgosahættu. Þessi atburður hefur reynst Grindvíkingum mikil áskorun og varpar ljósi á mikilvægi skilvirkrar krísustjórnunar í landinu. Aðstæður í Grindavík árið 2023 voru einstakar vegna þess hversu hratt ástandið þróaðist. Íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín með litlum fyrirvara og mörg atriði þurfti að hafa í huga, svo sem tryggingu á öruggum flutningi, varðveislu nauðsynlegra eigna og aðgengi að upplýsingum um ástandið. Markmið rannsóknarinnar var að leita svara við eftirfarandi spurningu: - Hver var upplifun Grindvíkinga af fyrstu rýmingunni í eldgosakrísunni 2023 og hvaða lærdóm má draga af viðbrögðum þeirra og reynslu fyrir krísustjórnun í framtíðinni? Að greina hvernig íbúar upplifðu þetta áfall og hvernig þeir brugðust við er ekki aðeins mikilvægt til að skilja mannlega hegðun í neyð heldur einnig til að þróa betri krísuáætlanir sem taka mið af raunverulegum þörfum og viðbrögðum fólks. Viðbrögð við náttúruhamförum eru hins vegar aðstæðubundin og oft þarf að taka ákvarðanir á stuttum tíma með takmarkaðar upplýsingar. Í slíku umhverfi er auðvelt að vera vitur eftir á, þegar meiri tími og yfirsýn er fyrir hendi. Rannsakandi notaði bæði megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Netkönnun var send út til íbúa Grindavíkur en hún innihélt bæði lokaðar og opnar spurningar um útfærslu rýmingarinnar og persónulegar upplifanir. Auk þess voru djúpviðtöl tekin til að fá betri innsýn í tilfinningaleg viðbrögð þátttakenda. Með þessum aðferðum var hægt að fá heildstæðari mynd af bæði almennu mynstri og persónulegri reynslu. Niðurstöðurnar sýna að rýmingin gekk að mestu leyti vel fyrir sig, en þær undirstrika mikilvægi stöðugra og skýrra upplýsinga í krísustjórnun, þar sem sumir íbúar upplifðu upplýsingaóreiðu. Einnig kom í ljós að áhættuskynjun íbúa var mótuð af fjölmörgum þáttum sem höfðu áhrif á ákvarðanatökuferli þeirra. On November 10th 2023, the residents of ...
format Master Thesis
genre Grindavík
genre_facet Grindavík
geographic Draga
Grindavík
geographic_facet Draga
Grindavík
id ftskemman:oai:skemman.is:1946/48587
institution Open Polar
language Icelandic
long_lat ENVELOPE(7.900,7.900,63.004,63.004)
ENVELOPE(-22.439,-22.439,63.838,63.838)
op_collection_id ftskemman
op_relation https://hdl.handle.net/1946/48587
publishDate 2024
record_format openpolar
spelling ftskemman:oai:skemman.is:1946/48587 2025-01-16T22:14:35+00:00 Krísustjórnun: Rýming Grindavíkur 10. nóvember 2023. Upplifun og viðbrögð Grindvíkinga. Crisis Management: The Evacuation of Grindavík on November 10th 2023. Experiences and Reactions of the People in Grindavík. Hólmfríður Sigurðardóttir 1997- Háskóli Íslands 2024-09 application/pdf image/jpeg https://hdl.handle.net/1946/48587 is ice https://hdl.handle.net/1946/48587 Verkefnastjórnun Thesis Master's 2024 ftskemman 2024-09-24T23:53:54Z Þann 10. nóvember 2023 stóðu íbúar Grindavíkur frammi fyrir óvenjulegri áskorun þegar þeim var skipað að yfirgefa heimili sín vegna yfirvofandi eldgosahættu. Þessi atburður hefur reynst Grindvíkingum mikil áskorun og varpar ljósi á mikilvægi skilvirkrar krísustjórnunar í landinu. Aðstæður í Grindavík árið 2023 voru einstakar vegna þess hversu hratt ástandið þróaðist. Íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín með litlum fyrirvara og mörg atriði þurfti að hafa í huga, svo sem tryggingu á öruggum flutningi, varðveislu nauðsynlegra eigna og aðgengi að upplýsingum um ástandið. Markmið rannsóknarinnar var að leita svara við eftirfarandi spurningu: - Hver var upplifun Grindvíkinga af fyrstu rýmingunni í eldgosakrísunni 2023 og hvaða lærdóm má draga af viðbrögðum þeirra og reynslu fyrir krísustjórnun í framtíðinni? Að greina hvernig íbúar upplifðu þetta áfall og hvernig þeir brugðust við er ekki aðeins mikilvægt til að skilja mannlega hegðun í neyð heldur einnig til að þróa betri krísuáætlanir sem taka mið af raunverulegum þörfum og viðbrögðum fólks. Viðbrögð við náttúruhamförum eru hins vegar aðstæðubundin og oft þarf að taka ákvarðanir á stuttum tíma með takmarkaðar upplýsingar. Í slíku umhverfi er auðvelt að vera vitur eftir á, þegar meiri tími og yfirsýn er fyrir hendi. Rannsakandi notaði bæði megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Netkönnun var send út til íbúa Grindavíkur en hún innihélt bæði lokaðar og opnar spurningar um útfærslu rýmingarinnar og persónulegar upplifanir. Auk þess voru djúpviðtöl tekin til að fá betri innsýn í tilfinningaleg viðbrögð þátttakenda. Með þessum aðferðum var hægt að fá heildstæðari mynd af bæði almennu mynstri og persónulegri reynslu. Niðurstöðurnar sýna að rýmingin gekk að mestu leyti vel fyrir sig, en þær undirstrika mikilvægi stöðugra og skýrra upplýsinga í krísustjórnun, þar sem sumir íbúar upplifðu upplýsingaóreiðu. Einnig kom í ljós að áhættuskynjun íbúa var mótuð af fjölmörgum þáttum sem höfðu áhrif á ákvarðanatökuferli þeirra. On November 10th 2023, the residents of ... Master Thesis Grindavík Skemman (Iceland) Draga ENVELOPE(7.900,7.900,63.004,63.004) Grindavík ENVELOPE(-22.439,-22.439,63.838,63.838)
spellingShingle Verkefnastjórnun
Hólmfríður Sigurðardóttir 1997-
Krísustjórnun: Rýming Grindavíkur 10. nóvember 2023. Upplifun og viðbrögð Grindvíkinga.
title Krísustjórnun: Rýming Grindavíkur 10. nóvember 2023. Upplifun og viðbrögð Grindvíkinga.
title_full Krísustjórnun: Rýming Grindavíkur 10. nóvember 2023. Upplifun og viðbrögð Grindvíkinga.
title_fullStr Krísustjórnun: Rýming Grindavíkur 10. nóvember 2023. Upplifun og viðbrögð Grindvíkinga.
title_full_unstemmed Krísustjórnun: Rýming Grindavíkur 10. nóvember 2023. Upplifun og viðbrögð Grindvíkinga.
title_short Krísustjórnun: Rýming Grindavíkur 10. nóvember 2023. Upplifun og viðbrögð Grindvíkinga.
title_sort krísustjórnun: rýming grindavíkur 10. nóvember 2023. upplifun og viðbrögð grindvíkinga.
topic Verkefnastjórnun
topic_facet Verkefnastjórnun
url https://hdl.handle.net/1946/48587