Nútímaævintýri? : framsetning kynjafræðilegra og stéttarlegra birtingamynda valds í kvikmyndinni Pretty Woman

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á hvernig kynjafræðilegar og stéttarlegar birtingarmyndir valds eru framsettar og endurspeglast í kvikmyndum. Kvikmyndin Pretty Woman, rómantísk gamanmynd frá árinu 1990 var tekin sem dæmi með tilviksrannsókn. Til að leita svara við þessu var skoðað...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hákon Svavarsson 1995-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/47960
Description
Summary:Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á hvernig kynjafræðilegar og stéttarlegar birtingarmyndir valds eru framsettar og endurspeglast í kvikmyndum. Kvikmyndin Pretty Woman, rómantísk gamanmynd frá árinu 1990 var tekin sem dæmi með tilviksrannsókn. Til að leita svara við þessu var skoðað með hvaða hætti kvikmyndin endurspeglar kynjakerfið, með tilliti til baráttu kvenna fyrir auknu jafnrétti, hugmyndir um karlmennsku og kvenleika auk þess að hvaða leyti kenningar Pierre Bourdieu skýra stéttaskiptingu aðalpersónanna í kvikmyndinni. Tilviksrannsókn var notuð en aðaláherslan var á ákveðin atriði kvikmyndarinnar. Skoðuð voru atriði til að draga upp samantekt þar sem kvikmyndin var greind, ályktanir dregnar og niðurstöður settar fram, út frá fræðilegum bakgrunni til að svara tilteknum rannsóknarspurningum. Meginniðurstaða þessarar ritgerðar að þótt kyn og stéttarstaða hafi ólík áhrif á einstaklinga, ef tekið er tilliti til birtingarmynda valds er mikilvægt að horfa til beggja sjónarmiða til að auka skilning á þeirri framsetningu sem kvikmynd líkt og Pretty Woman skilar. Einstaklingar lifa í sama stéttskipta samfélaginu og því erfitt að skilja þessi tvö valdakerfi í sundur. Kynjakerfið og stéttaskipting hafi ólík áhrif á mismunandi einstaklinga en eru samt sem áður mótandi öfl sem gróið hafa fast í samfélaginu sem stýrir hegðun fólks og spyrja ekki um áhrifin sem þau geta ollið. The thesis is submitted as a part of Baccalaureate Atrium degree in Social Studies at University of Akureyri. The study aims to shed light on gendered and class-based manifestations of power that are presented and reflected in films. The film Pretty Woman, a romantic comedy from the year 1990, was exemplified by a case study. The main objective of the study is to look at how the film reflects the gender system in terms of women’s struggle for greater equality, ideas about masculinity and feminity, as well as how Pierre Bourdieu’s theories explain the class division of the main characters in the film. A case study was used, and the ...