Ný matvöruverslun á Húsavík : viðhorf íbúa til uppbyggingar og áhrif á miðbæjarlíf kaupstaðarins

Húsavík er bæjarfélag sem hefur verið í mikilli uppbyggingu síðustu ár þar sem verslun, þjónusta og atvinnulíf er í stöðugri framþróun. Góð almenn þjónusta er í bæjarfélaginu og mikil náttúrufegurð ásamt því að tækifæri til tómstundaiðkunar eru mörg. Mismunandi umfjöllun varðandi uppbyggingu matvöru...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Mikael Þorsteinsson 1986-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/47952
Description
Summary:Húsavík er bæjarfélag sem hefur verið í mikilli uppbyggingu síðustu ár þar sem verslun, þjónusta og atvinnulíf er í stöðugri framþróun. Góð almenn þjónusta er í bæjarfélaginu og mikil náttúrufegurð ásamt því að tækifæri til tómstundaiðkunar eru mörg. Mismunandi umfjöllun varðandi uppbyggingu matvöruverslunar hefur heyrst í almennu umtali innan bæjarfélagsins og hafa skapast mjög líflegar umræður og mismunandi skoðanir hjá hinum ýmsu aðilum innan samfélagsins. En hver eru viðhorf íbúa varðandi uppbyggingu matvöruverslunar og hvaða áhrif hefur uppbygging hennar á staðarvitund og þróun lifandi miðbæjar í smáu byggðarlagi eins og Húsavík? Í þessari ritgerð voru tekin viðtöl með opnum spurningum við fimm einstaklinga á ýmsum aldri, varðandi kosti þess og galla að búa innan bæjarfélagsins og hvaða samgöngumáta íbúar nýta sér við verslun og þjónustu ásamt því að kanna viðhorf þeirra til uppbyggingar á nýrri matvöruverslun innan Húsavíkur. Einnig verður kannað hvaða áhrif sú uppbygging hefðu á búsetuánægju og miðbæjarlíf bæjarfélagsins. Mikill meirihluti íbúa á Húsavík er mjög ánægður með búsetu innan bæjarfélagsins og telur alla almenna þjónustu góða. Íbúarnir hafa góða umhverfisvitund og telja að samspil umhverfis og skipulags stuðli að bættri verslun og þjónustu í samfélaginu með það að leiðarljósi að auka kosti þess að búa í smáu bæjarfélagi úti á landi með bættu mannlífi, með tilliti til matvöruverslunar og iðandi lífs í miðbæ Húsavíkur. Lykilorð: búsetugæði, umhverfi, skipulag, miðbæjarlíf, matvöruverslun. Húsavík is a rural town currently experiencing significant development, with ongoing progress in trade, services, and the economy. Situated in close proximity to excellent public services, stunning natural landscapes and abundant recreational opportunities, the municipality has become a focal point of discussion regarding the establishment of a new grocery store. These discussions among the town inhabitants have sparked lively debates and varied opinions among community members. The current study revolves ...