Summary: | Í þessu meistaraprófsverkefni er reynt að varpa ljósi á aðstöðu barna flóttamanna í íslensku leikskólakerfi. Þau koma með fjölskyldum sínum til Íslands, sum frá stríðshrjáðum löndum í leit að vernd. Íslenskar rannsóknir hafa sýnt fram á að skortur sé á stuðningi við skóla landsins, meðal annars frá skólaþjónustu sveitarfélaga og enn sé lögð sterk áhersla á klínískar aðgerðir í garð nemenda sem þurfa viðbótarstuðning í námi. Í niðurstöðum rannsókna er bent á mikilvægi þess að veita ráðgjöf og stuðning við kennara og starfsemi skóla. Rannsóknir hafa að sama skapi sýnt fram á að það skipti höfuðmáli í fjölmenningarlegu samfélagi að hafa markvissa stefnu sem skilar skilvirkari aðgerðum innan skóla. Jafnframt þarf að gera betur gagnvart börnum flóttamanna í okkar nútímasamfélagi og veita þeim aukinn stuðning og hlúa að alhliða þörfum þeirra fyrstu mánuðina í íslenskum leikskólum. Markmið rannsóknarinnar var annars vegar að fá innsýn inn í hvernig undirbúningi og samstarfi skólaþjónustunnar við móttökuskóla hafði verið háttað og hins vegar að fá innsýn inn í upplifun starfsfólks skóla sem hafði tekið á móti börnum flóttamanna inn í leikskólasamfélagið. Eigindleg rannsóknaraðferð varð fyrir valinu og tekin voru tvö rýnihópaviðtöl, annars vegar við starfsmenn leikskóla og hins vegar starfsfólk skólaþjónustu í einu sveitarfélagi á Íslandi. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að undirbúningi fyrir komu barna flóttamanna í einu sveitarfélagi á Íslandi hafi verið ábótavant. Það kom meðal annars fram að samstarf milli skólaþjónustunnar og leikskólastarfsmanna hafði verið takmarkað og jafnvel ekkert fyrir komu barna flóttamanna. Leikskólastarfsmenn upplifðu töluvert mikið viðbótarálag á meðan aðlögunin átti sér stað og fyrstu mánuðina eftir á og sömuleiðis skort á stuðningi frá skólaþjónustunni í daglegu leikskólastarfi. In this master‘s thesis, an attempt is made to shed light on the situation of refugee children in the Icelandic preschool system. They come with their families to Iceland, some of them from wor-torn ...
|