Summary: | Rannsóknin skoðar innra umhverfi góðgerðafélaga á Íslandi og áhrif þess á árangur fjáröflunarstarfs. Með viðtölum við fimm reynda sérfræðinga í fjáröflun fyrir góðgerðafélög eru dregnir fram innri umhverfisþættir sem hafa áhrif á skilvirkni fjáraflana. Þetta eru áhrifaþættir á borð við stofnanamenningu og stjórnun, kostnaðaraðhald og álag. Rannsóknin leiðir meðal annars í ljós að innra umhverfi þeirra sem annast fjáröflun góðgerðafélaga er að mörgu leyti ábótavant. Víða er álag of mikið, starfsmannavelta ör, kostnaðaraðhald kreddufast og námstækifæri fá, auk þess sem viðhorf stjórnenda og samstarfsfólks er letjandi. Á þessu eru þó mikilvægar undantekningar. Rannsóknin rýnir stöðu þessara mála og fjallar um til hvaða úrbóta góðgerðafélög geta gripið. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna meðal annars að ytra umhverfi góðgerðafélaga hefur gjörbreyst á skömmum tíma. Það kallar á nýja nálgun við öflun fjár. Hugmyndir okkar um það hvað fjáröflun felur í sér hafa aftur á móti staðið í stað og kemur það niður á hinu innra umhverfi. Í lokin er hvatt til umræðu um það hvernig við metum árangur góðgerðafélaga og um eðli og hlutverk fjáröflunar. The research examines the internal environment of charities in Iceland and its impact on the effectiveness of fundraising activities. Through interviews with five experienced fundraising specialists for charities, internal environmental factors affecting the efficiency of fundraising are identified. These factors include organizational culture and management, cost management, and workload. The study reveals that the internal environment of charity fundraisers is largely deficient. Workloads are often excessive, staff turnover is high, cost management is rigid, and training opportunities are limited, in addition to which attitudes of managers and colleagues are discouraging. However, there are significant exceptions to this. The research analyzes the status of these issues and discusses potential improvements that charities can make. The findings of the study indicate, among other ...
|