Ferðafrelsi og umhverfi barna: Áhrif þéttingar byggðar á umhverfi barna í Reykjavík og frelsi þeirra til að njóta umhverfisgæða síns nærumhverfis

Áform Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins um þéttingu byggðar marka eina mestu stefnubreytingu í sögu byggðarþróunar á Íslandi. Áhrif þéttingar byggðar á börn og umhverfi þeirra geta verið margskonar, ýmist jákvæð eða neikvæð, en vegna skorts á rannsóknum, gögnum og umræð...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Arnar Þórsson 1995-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/47522
Description
Summary:Áform Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins um þéttingu byggðar marka eina mestu stefnubreytingu í sögu byggðarþróunar á Íslandi. Áhrif þéttingar byggðar á börn og umhverfi þeirra geta verið margskonar, ýmist jákvæð eða neikvæð, en vegna skorts á rannsóknum, gögnum og umræðu um áhrif stefnunnar á börn er erfitt að segja til um hvort hún sé þeim í hag eða ekki — og eru börn meðal viðkvæmustu hópanna innan borga. Markmið þessa verkefnis er að rannsaka og greina hver áhrif þéttingar byggðar eru á umhverfi barna í Reykjavík og frelsi þeirra til þess að njóta umhverfisgæða síns nærumhverfis. Í ritgerðinni er farið yfir réttindi og þarfir barna, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sænska aðferðafræði um áhrifagreiningu í þágu barna, stefnur Reykjavíkurborgar tengdar hagsmunum barna og þau umhverfisgæði sem börn þurfa á að halda til þess að njóta farsæls þroska ásamt þeim sem nú þegar eru til staðar. Þessi atriði eru höfð til hliðsjónar við greiningar tveggja ólíkra hverfa í Reykjavík, Seljahverfis og nýja Skerjafjarðar, sem fara að miklu leyti fram með vinnslu landfræðilegra gagna í formi kerfagreininga gönguleiða (e. network analysis) og samanburði á jafntímasvæðum. Þrátt fyrir að sérstök aðferðafræði við áhrifagreiningu í þágu barna hafi ekki verið innleidd á Íslandi eru nýi Skerjafjörður og Seljahverfi dæmi um vel lukkuð hverfi, hvað réttindi, þarfir, ferðafrelsi og umhverfi barna varðar. Þó þarf að hafa í huga að víðtækum og fjölbreyttum áhrifum þéttingar byggðar munar á milli hverfa og því mikilvægt að nálgast áhrifagreingingu í þágu barna með kerfisbundnum hætti til þess að tryggja að frekari byggðarþróun komi ekki til með að hafa neikvæð áhrif á börn.