"Hver vegur að heiman er vegurinn heim". Þróun náms- og starfsferils háskólamenntaðra á Austurlandi.

Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á hvernig það hefur áhrif á náms- og starfsval sem og þróun náms- og starfsferils fólks að búa á Austurlandi. Rannsóknin miðar að því að auka þekkingu á reynslu einstaklinga sem ólust upp á Austurlandi, eru búsettir þar í dag og hafa lokið háskólanámi. Á...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristjana Hvönn Þrastardóttir 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/46908
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á hvernig það hefur áhrif á náms- og starfsval sem og þróun náms- og starfsferils fólks að búa á Austurlandi. Rannsóknin miðar að því að auka þekkingu á reynslu einstaklinga sem ólust upp á Austurlandi, eru búsettir þar í dag og hafa lokið háskólanámi. Á Austurlandi er enginn háskóli starfræktur og aðgengi að háskólanámi því takmarkað og eins og víða á landsbyggðinni er hlutfall háskólamenntaðra lægra en á höfuðborgarsvæðinu (Hagstofa Íslands, 2021). Tekin voru viðtöl við ungt fólk á Austurlandi sem lokið hefur háskólanámi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að aðgengi að námi hefur áhrif á námsferil fólks og þannig á framtíðarstarf. Ungt fólk á Austurlandi leggur mikið á sig til þess að mennta sig frekar eftir framhaldsskóla. Hvort sem það er að flytja nær háskóla og stunda þar nám eða stunda fjarnám samhliða vinnu í sinni heimabyggð. Einnig komu í ljós margar ástæður fyrir því að fólk flytur svo aftur í heimahaga eftir nám en þar má nefna tengslanet, húsnæðisverð og heillandi umhverfi til að ala upp börn. Að lokum kom fram að ungt fólk á Austurlandi er ánægt með starfstækifærin á svæðinu og lítur björtum augum til framtíðar. Rannsóknin gefur til kynna að mikilvægt sé að jafna tækifæri til náms óháð búsetu. The aim of this study is to explore the career development of young people in Eastern part of Iceland. Emphasis will be put on how educational opportunities access and employment opportunities influence individuals' choices and development. There is no university in the vast area of eastern Iceland and the area has a fewer people with higher education compared to the capital area (Hagstofa Íslands, 2021). Factors such as educational opportunities and job prospects are likely to influence young peoples' career development in the area. Special attention will be given to understanding the challenges and opportunities faced by young people in rural areas when making educational and career choices. Interviews were conducted with young adults who have pursued higher ...