„Við viljum alltaf að barnið sé besta útgáfan af sjálfu sér“ : sérkennslustarf í leikskólum

Rannsókn þessi er eigindleg sem og byggir á opnum viðtölum við fjóra sérkennslustjóra sem framkvæmd voru í mars 2023. Viðmælendur áttu það sameiginlegt að starfa sem sérkennslustjórar í leikskólum Reykjavík. Sérkennslustarf hvers og eins sérkennslustjóra var skoðað og greindir þættir sem áhrif hafa...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Unnur Elva Traustadóttir 1998-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/45896
Description
Summary:Rannsókn þessi er eigindleg sem og byggir á opnum viðtölum við fjóra sérkennslustjóra sem framkvæmd voru í mars 2023. Viðmælendur áttu það sameiginlegt að starfa sem sérkennslustjórar í leikskólum Reykjavík. Sérkennslustarf hvers og eins sérkennslustjóra var skoðað og greindir þættir sem áhrif hafa á starf þeirra. Tilgangur rannsóknarinnar er að fá innsýn í hvernig haldið er utan um börn sem þurfa á auknum stuðningi að halda í leikskólum Reykjavíkur. Sjónum verður beint að því hvernig sérkennslustjórar skipuleggja starf sitt sem getur verið misjafnt eftir leikskólum. Markmið rannsóknarinnar er að fá sýn sérkennslustjóra á starfið og hvernig þeir takast á við það verkefni að styðja við börn með auknar stuðningsþarfir. Ekki var horft á sérþarfir barnanna heldur var einblínt á viðhorf og upplifanir sérkennslustjóra. Niðurstöður benda til þess að fyrirkomulag sérkennslu í leikskóla sé breytilegt frá einum leikskóla til annars. Bakgrunnur sérkennslustjóranna var misjafn þar sem munur lá í starfsreynslu, menntun og viðhorfi þeirra. Sérkennslustjórarnir voru sammála um að starf þeirra væri fjölbreytt og enginn dagur eins. Þá sögðu sérkennslustjórarnir það vera margt sem þeir gera til þess að halda utan um börn sem þurfa á auknum stuðningi að halda. Það helsta var að vera í góðu samstarfi við kennara bæði innan og utan leikskólans, foreldrasamstarf, skapa gott námsumhverfi, beita snemmtækri íhlutun og fleira. Áttu sérkennslustjórarnir það sameiginlegt að þurfa að glíma við ýmsar áskoranir í sínu starfi. Sérkennslustjórarnir nefndu helst manneklu, skort á fjármagni, plássleysi og mikla pappírsvinnu sem hluta af ástæðu þess að það sé erfitt að annast þau börn sem þurfa á auknum stuðningi að halda. Misjafnt var hvernig sérkennslustjórarnir náðu að grípa inn í hjá þeim börnum sem ekki fylgdi fjármagn við úthlutun á sérkennslu og tryggja að engin börn fari fram hjá þeim. Þá kom það fram að sérkennslustjórar og kennarar leikskóla nái ekki alltaf að vinna markvisst með börnum sem þurfa á auknum stuðningi að halda vegna þessara ...