Samverustundir leikskólabarna frá 1-3 ára : leikur, nám og málörvun
Þetta lokaverkefni til B.Ed gráðu í leikskólakennarafræðum er skipt upp í tvo hluta, annar er handbók samverustunda fyrir 1-3 ára börn og hinn hlutinn er greinargerð þar sem fjallað verður fræðilega um þau viðfangsefni sem snúa að yngstu börnunum í leikskólanum og samverustundum. Markmið handbókarin...
Main Authors: | , |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Bachelor Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2023
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/45631 |
Summary: | Þetta lokaverkefni til B.Ed gráðu í leikskólakennarafræðum er skipt upp í tvo hluta, annar er handbók samverustunda fyrir 1-3 ára börn og hinn hlutinn er greinargerð þar sem fjallað verður fræðilega um þau viðfangsefni sem snúa að yngstu börnunum í leikskólanum og samverustundum. Markmið handbókarinnar er að auðvelda starfsfólki leikskóla að framkvæma samverustundir og þannig styrkja þau í samverustundum þannig að þau nái fram þeim lærdómi sem er ætlast af þeim. Handbókin var gerð með það í huga að styðja við nýtt starfsfólk í leikskólum ásamt því að vera stuðningur og hugmyndabanki fyrir þá sem eru vanir starfsmenn. Handbókin var gerð í gegnum Google Docs þar sem önnur okkar er í Reykjavík og hin í Stokkhólmi og tók um 1 mánuð að gera hana. Við notuðumst einnig við forritið Canva, þar bjuggum við til allar myndirnar fyrir viðaukana ásamt QR kóða og myndbandinu við tölu lagið. Við settum saman samverustundir sem okkur fannst skemmtilegar og sniðugar til að taka með krökkum á aldrinum 1 - 3 ára. Tveir leiðbeinendur í leikskóla voru fengnir til þess að prófa handbókina og var niðurstaðan sú að hún nýtist þeim vel og efnið í henni hentaði vel aldrinum sem höfundar voru með í huga við gerð hennar. |
---|