Verslun án landamæra

Markmið þessarar ritgerðar er að skoða þróun netverslunar á Íslandi í samanburði við þróun netverslunar erlendis. Einnig vildu skýrsluhöfundar kanna hvort og hvernig stjórnendur netverslana sjái fyrir sér að netverslun þeirra á Íslandi muni þróast í framtíðinni og hvort þeir sjái fram á að íslenskar...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Berglind Jónsdóttir 1974-, Guðbjörg Ólafsdóttir 1983-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/43490
Description
Summary:Markmið þessarar ritgerðar er að skoða þróun netverslunar á Íslandi í samanburði við þróun netverslunar erlendis. Einnig vildu skýrsluhöfundar kanna hvort og hvernig stjórnendur netverslana sjái fyrir sér að netverslun þeirra á Íslandi muni þróast í framtíðinni og hvort þeir sjái fram á að íslenskar netverslanir hafi haldið í við þróun erlendra netverslana. Þá er leitast við að fá svar við spurningunni hvort nauðsynlegt sé fyrir fyrirtæki að starfrækja netverslun samhliða venjulegri verslun til að tryggja rekstur sinn til framtíðar. Að lokum var skoðað hvort neytendur nýti netverslanir til annars en til beinna kaupa. Með þessu vildu skýrsluhöfundar skoða sérstaklega hvernig íslensk netverslun hefur með vaxandi tækniþróun og öðrum áhrifaþáttum öðlast þann sess í huga neytenda sem raun er. Beitt var eigindlegri rannsóknaraðferð í formi viðtala. Tekin voru viðtöl við fimm stjórnendur fyrirtækja sem starfrækja netverslun samhliða venjulegri verslun. Sjá má á niðurstöðum rannsóknarinnar að stjórnendur fyrirtækja skilja þarfir og óskir sinna neytenda og markaðarins vel. Mikil framför og þróun hefur átt sér stað í heiminum þegar kemur að stafrænni tækni og hafa netverslanir verið duglegar að nýta sér það til að missa ekki af lestinni. Markaðurinn er að þróast í þá átt að venjuleg verslun þarf helst að vera með netverslun því annars er fyrirtækið ekki að nýta sér þá kosti og framþróun sem þarf til að ná til neytenda og nýrra viðskiptavina. Hér áður fyrr voru það erlendar netverslanir sem höfðu yfirhöndina hjá íslenskum neytendum en netverslanir á Íslandi hafa snúið vörn í sókn og versla íslenskir neytendur nú heldur við innlendar netverslanir. Því má segja að þróun íslenskra netverslana sé í takt við þær erlendu. Lykilorð: Netverslun, stafrænt ákvörðunarferli, stafræn markaðssetning, rafræn viðskipti, áhrifavaldar. The goal of this essay is to check the development of online shopping in Iceland compared to the development of foreign online stores. The authors also wanted to check if and how online store managers see ...