„Takk Kópavogsbær fyrir að fylgjast með mér": Viðhorf eldri íbúa til þjónustu Kópavogsbæjar

Markmið rannsóknarinnar er að kanna viðhorf eldri íbúa til þjónustu Kópavogsbæjar. Ritgerðin byggir á rannsókn sem unnin var meðal eldri íbúa sem fá innlitsþjónustu hjá velferðarsviði Kópavogs þar sem viðhorf þeirra til þjónustu Kópavogsbæjar og þörf fyrir frekari þjónustu voru könnuð. Notast var vi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Herdís Björnsdóttir 1981-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42823
_version_ 1821572847812739072
author Herdís Björnsdóttir 1981-
author2 Háskóli Íslands
author_facet Herdís Björnsdóttir 1981-
author_sort Herdís Björnsdóttir 1981-
collection Skemman (Iceland)
description Markmið rannsóknarinnar er að kanna viðhorf eldri íbúa til þjónustu Kópavogsbæjar. Ritgerðin byggir á rannsókn sem unnin var meðal eldri íbúa sem fá innlitsþjónustu hjá velferðarsviði Kópavogs þar sem viðhorf þeirra til þjónustu Kópavogsbæjar og þörf fyrir frekari þjónustu voru könnuð. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð og var gagna aflað með símakönnun. Hringt var í íbúa sem fengu innlitsþjónustu í mars 2022. Svörunin var 75%. Spurt var um líðan og viðhorf til þjónustu hjá Kópavogsbæ ásamt þörf fyrir aukna þjónustu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að eldri íbúar sem fá innlitsþjónustu eru almennt ánægðir með þjónustu Kópavogsbæjar. Niðurstöður rannsóknarinnar samræmast að miklu leyti niðurstöðum annarra rannsókna á þessu sviði. Yfirgnæfandi meirihluti notenda sem fá innlit eru konur og er helmingur þeirra 85 ára eða eldri. Flestir búa í eigin húsnæði og með tilliti til hjúskaparstöðu eru ekkjur stærsti hópur þeirra sem fá innlit. Karlmenn eru hlutfallslega flestir í þeim hópi sem fær þjónustu nokkrum sinnum í viku eða daglega. Allir íbúar sem fá innlitsþjónustu telja sig hafa þörf fyrir þessa þjónustu. Fjórðungur íbúa sem fær innlit telur sig ekki fá næga þjónustu. Aðstandendur, í flestum tilfellum dætur, hjálpa og aðstoða mest í daglegu lífi að mati íbúa sem fá innlit. Meirihluti telur lífsgæði sín góð, hlutfallslega flestir í aldursflokknum 85 ára eða eldri. Eldri íbúar kjósa að búa sjálfstætt í eigin húsnæði og eru þeir sáttir við búsetuhagi sína og telja sig búa við öryggi. Stór hluti þeirra sem býr við þjónustukjarna sækir þjónustu þangað. Þörf fyrir frekari þjónustu er greinilega til staðar hjá ákveðnum hópi íbúa og fer að öllum líkindum vaxandi hjá ört stækkandi hópi eldra fólks á næstu árum og áratugum. Það er mikilvægt að hugað sé að öllum þáttum og gæðum samþættrar og samfelldrar þjónustu til eldra fólks með frekari rannsóknum á þessu sviði. Lykilorð: Eldra fólk, þjónusta, Kópavogsbær, lög.
format Thesis
genre Kópavogur
genre_facet Kópavogur
geographic Fjórðungur
Kópavogsbær
Kópavogur
Mati
geographic_facet Fjórðungur
Kópavogsbær
Kópavogur
Mati
id ftskemman:oai:skemman.is:1946/42823
institution Open Polar
language Icelandic
long_lat ENVELOPE(-14.700,-14.700,65.267,65.267)
ENVELOPE(-21.868,-21.868,64.098,64.098)
ENVELOPE(-21.900,-21.900,64.000,64.000)
ENVELOPE(138.769,138.769,59.335,59.335)
op_collection_id ftskemman
op_relation http://hdl.handle.net/1946/42823
publishDate 2022
record_format openpolar
spelling ftskemman:oai:skemman.is:1946/42823 2025-01-16T22:56:08+00:00 „Takk Kópavogsbær fyrir að fylgjast með mér": Viðhorf eldri íbúa til þjónustu Kópavogsbæjar Herdís Björnsdóttir 1981- Háskóli Íslands 2022-09 application/pdf http://hdl.handle.net/1946/42823 is ice http://hdl.handle.net/1946/42823 Félagsráðgjöf Öldrunarþjónusta Kópavogur Thesis Master's 2022 ftskemman 2022-12-11T06:55:14Z Markmið rannsóknarinnar er að kanna viðhorf eldri íbúa til þjónustu Kópavogsbæjar. Ritgerðin byggir á rannsókn sem unnin var meðal eldri íbúa sem fá innlitsþjónustu hjá velferðarsviði Kópavogs þar sem viðhorf þeirra til þjónustu Kópavogsbæjar og þörf fyrir frekari þjónustu voru könnuð. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð og var gagna aflað með símakönnun. Hringt var í íbúa sem fengu innlitsþjónustu í mars 2022. Svörunin var 75%. Spurt var um líðan og viðhorf til þjónustu hjá Kópavogsbæ ásamt þörf fyrir aukna þjónustu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að eldri íbúar sem fá innlitsþjónustu eru almennt ánægðir með þjónustu Kópavogsbæjar. Niðurstöður rannsóknarinnar samræmast að miklu leyti niðurstöðum annarra rannsókna á þessu sviði. Yfirgnæfandi meirihluti notenda sem fá innlit eru konur og er helmingur þeirra 85 ára eða eldri. Flestir búa í eigin húsnæði og með tilliti til hjúskaparstöðu eru ekkjur stærsti hópur þeirra sem fá innlit. Karlmenn eru hlutfallslega flestir í þeim hópi sem fær þjónustu nokkrum sinnum í viku eða daglega. Allir íbúar sem fá innlitsþjónustu telja sig hafa þörf fyrir þessa þjónustu. Fjórðungur íbúa sem fær innlit telur sig ekki fá næga þjónustu. Aðstandendur, í flestum tilfellum dætur, hjálpa og aðstoða mest í daglegu lífi að mati íbúa sem fá innlit. Meirihluti telur lífsgæði sín góð, hlutfallslega flestir í aldursflokknum 85 ára eða eldri. Eldri íbúar kjósa að búa sjálfstætt í eigin húsnæði og eru þeir sáttir við búsetuhagi sína og telja sig búa við öryggi. Stór hluti þeirra sem býr við þjónustukjarna sækir þjónustu þangað. Þörf fyrir frekari þjónustu er greinilega til staðar hjá ákveðnum hópi íbúa og fer að öllum líkindum vaxandi hjá ört stækkandi hópi eldra fólks á næstu árum og áratugum. Það er mikilvægt að hugað sé að öllum þáttum og gæðum samþættrar og samfelldrar þjónustu til eldra fólks með frekari rannsóknum á þessu sviði. Lykilorð: Eldra fólk, þjónusta, Kópavogsbær, lög. Thesis Kópavogur Skemman (Iceland) Fjórðungur ENVELOPE(-14.700,-14.700,65.267,65.267) Kópavogsbær ENVELOPE(-21.868,-21.868,64.098,64.098) Kópavogur ENVELOPE(-21.900,-21.900,64.000,64.000) Mati ENVELOPE(138.769,138.769,59.335,59.335)
spellingShingle Félagsráðgjöf
Öldrunarþjónusta
Kópavogur
Herdís Björnsdóttir 1981-
„Takk Kópavogsbær fyrir að fylgjast með mér": Viðhorf eldri íbúa til þjónustu Kópavogsbæjar
title „Takk Kópavogsbær fyrir að fylgjast með mér": Viðhorf eldri íbúa til þjónustu Kópavogsbæjar
title_full „Takk Kópavogsbær fyrir að fylgjast með mér": Viðhorf eldri íbúa til þjónustu Kópavogsbæjar
title_fullStr „Takk Kópavogsbær fyrir að fylgjast með mér": Viðhorf eldri íbúa til þjónustu Kópavogsbæjar
title_full_unstemmed „Takk Kópavogsbær fyrir að fylgjast með mér": Viðhorf eldri íbúa til þjónustu Kópavogsbæjar
title_short „Takk Kópavogsbær fyrir að fylgjast með mér": Viðhorf eldri íbúa til þjónustu Kópavogsbæjar
title_sort „takk kópavogsbær fyrir að fylgjast með mér": viðhorf eldri íbúa til þjónustu kópavogsbæjar
topic Félagsráðgjöf
Öldrunarþjónusta
Kópavogur
topic_facet Félagsráðgjöf
Öldrunarþjónusta
Kópavogur
url http://hdl.handle.net/1946/42823