Summary: | Það er áhætta sem fylgir því þegar fólk kemur saman á mannamótum eins og viðburðum og sýningum. Því er mikilvægt að allir ferlar og öll viðbrögð séu fyrir fram ákveðin, æfð og skýr í framkvæmd, þ.e.a.s. að mikilvægt er að krísustjórnun sé í hávegum höfð. Því rannsakaði höfundur hvernig viðburðarfyrirtæki á Íslandi eru að nýta sér krísufræði þegar kemur að lifandi viðburðum. Rannsóknin tengir saman viðburðastjórnun og sýningarstjórnun við krísufræði, enda er mikilvægt að viðburðastjórnendur hafi þekkingu í krísustjórnun. Í þessari ritgerð er farið yfir fræðilegt yfirlit krísustjórnunar þar sem skilgreind eru lykilhugtök og kenningar í krísufræðum. Þar er sýnt fram á hvernig krísustjórnun tengist viðburðastjórnun og farið er yfir helstu krísur á viðburðum og þær greindar m.t.t. krísufræða. Þessar krísur eru: slys á starfsmanni, slys á áhorfanda, tæknileg bilun og rýming. Þessar krísur eru einnig greindar m.t.t. kenningarinnar um aðstæður krísu (e. Situational Crisis Communications Theory). Framkvæmd var eigindleg rannsókn og tekin viðtöl við sjö viðburða- og sýningarstjóra í stærstu viðburðarfyrirtækjum á Íslandi og ofangreindar krísur voru ræddar. Niðurstaðan var sú að krísufræðin endurspeglast gjarnan í viðburðahaldi á Íslandi en það eru mikil krísufræði sem ekki er verið að nota. Viðmælendur eru sammála krísufræðunum um mikilvægi áætlana, áhættustjórnunar, samskipta, upplýsingagjafar o.fl. en ekki var verið að nýta sér strategíur í krísuviðbrögðum út frá aðstæðum o.fl. Þó virðist sem breyting á viðhorfi sé að eiga sér stað og voru viðmælendur sammála um að öryggi væri nú æðra viðburðinum sjálfum. A risk is involved in gathering people for events and shows. That is why it is important that all responses and processes are distinct and have been decided and rehearsed, i.e. crisis management is of great importance. That is why the author studied how Icelandic event businesses are using crisis management during live events. This study connects event and stage management to crisis studies as it is important that ...
|