Anxiety, fatigue, and quality of life in individuals with multiple sclerosis

Heila- og mænusigg (MS) er algengasti taugasjúkdómurinn sem ungir og miðaldra einstaklingar greinast með. Rannsóknir hafa sýnt að 20-50% einstaklinga greindir með MS upplifi sálræn einkenni, líkt og kvíða og þunglyndi. Algengi kvíða er hærri á meðal einstaklinga með MS samanborið við almenning. Mark...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Inga Lill Maríanna Björnsdóttir 1997-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:English
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42466
Description
Summary:Heila- og mænusigg (MS) er algengasti taugasjúkdómurinn sem ungir og miðaldra einstaklingar greinast með. Rannsóknir hafa sýnt að 20-50% einstaklinga greindir með MS upplifi sálræn einkenni, líkt og kvíða og þunglyndi. Algengi kvíða er hærri á meðal einstaklinga með MS samanborið við almenning. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvort einstaklingar greindir með MS á Íslandi upplifi einkenni kvíða. Jafnframt var skoðað einkenni síþreytu og lífsgæði samanborið við einstaklinga ekki greinda með sjúkdóminn. Spurningarlistinn innihélt spurningar um aldur, kyn, MS greiningu og fjölda ára frá greiningu. Einnig voru settir fram þrír spurningarlistar til að meta kvíða, síþreytu og lífsgæði. Það voru 363 þátttakendur, þar af 51.2% greindir með MS og meirihluti þátttakendanna voru kvenkyns (79.2%). Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að einstaklingar með MS voru með martækt meiri einkenni kvíða og síþreytu, og verri lífsgæði samanborið við einstaklinga ekki greinda með sjúkdóminn. Einstaklingar sem voru greindir innan fimm ára voru með marktækt meiri kvíða en einstaklingar greindir lengur en 11 ár. Fylgni var á milli kvíða, síþreytu og lífsgæða hjá einstaklingum greinda með MS. Rannsóknir á MS og kvíða hafa verið framkvæmdar margoft, en minna er vitað um algengi kvíða á meðal einstaklinga með MS á Íslandi. Er því gríðarlega mikilvægt að framkvæma rannsókn á einstaklingum með MS varðandi þeirra andlegu líðan. Lykilorð: Multiple sclerosis, kvíði, síþreyta, lífsgæði Multiple sclerosis is the most common neurological disability affecting young and middle- aged adults. Research has shown that 20% to 50% of individuals with MS experience psychological symptoms, such as anxiety and depression. Individuals with MS have a higher prevalence of anxiety compared to the general population. The aim of this study was to examine whether individuals diagnosed with MS in Iceland experienced symptoms of anxiety. Furthermore, this study also examined symptoms of fatigue and quality of life for individuals with MS compared to individuals ...