Áhrif MPM náms Háskóla Reykjavíkur á tilfinningagreind nemenda

Könnun þessi sem mælir áhrif MPM náms Háskóla Reykjavíkur á tilfinningagreind nemenda sýnir að tilfinningagreind þeirra 29 sem tóku þátt jókst um 2.6 af 4 mögulegum með tilkomu námsins. Viðfangsefni rannsóknarinnar var að meta hvar tilfinningagreindarleg hæfni nemenda stendur í lok MPM námsins við ú...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðmundur Bergmann Óðinsson 1988-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
MPM
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/42061
Description
Summary:Könnun þessi sem mælir áhrif MPM náms Háskóla Reykjavíkur á tilfinningagreind nemenda sýnir að tilfinningagreind þeirra 29 sem tóku þátt jókst um 2.6 af 4 mögulegum með tilkomu námsins. Viðfangsefni rannsóknarinnar var að meta hvar tilfinningagreindarleg hæfni nemenda stendur í lok MPM námsins við útskrift árið 2022. Helstu niðurstöður eru að mestra áhrifa er að gæta í hæfni nemenda við að finna til samkenndar en minnstra áhrifa er að gæta á hæfni nemenda við að skilja eigin hvatir. Um er að ræða rannsókn sem gerð var um það leyti sem nemendur voru að ljúka námi og gera má ráð fyrir að full áhrif námsins hafi enn ekki komið fram meðal nemenda. Heimsfaraldur síðast liðina tveggja ára og tækifæri nemenda til að nýta þá þekkingu sem þeir hafa aflað eru helstu áhrifaþættir á niðurstöðu rannsóknarinnar. Niðurstöður leiða í ljós innan hvaða hæfniþátta tilfinningagreindar nemendur hafa mesta getu og einnig innan hvaða hæfniþátta nemendur hafa möguleika á að styrkja sig enn frekar.