Summary: | Verkefnið sérist um að finna tveggja hæða einbýlishús á íslandi og breyta því útlistlega, skipulagslega eða hvoru tveggja. Húsið átti síðan að teikna upp og skrifa skýrslu sem greinir frá öllu sem við kemur húsinu og framkvæmd þess. Kröfur voru gerðar að neðri hæð hússins væri úr steypu og efri hæð úr timbri. Einnig átti þak hússins að vera loftað timburþak. Teiknisettið inniheldur: Teikniskrá, aðaluppdrætti, skráningartöflu, verkteikningar, deiliteikningar, og lagnateikningar. Skýrsla inniheldur: Hönnunarferli, verklýsingu, tilboðsskrá, kostnaðaráætlun, burðarþols- varmataps- lagna- og loftunarútreikninga. Auk umsóknar um byggingarleyfi. Öll hönnun fer eftir lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012
|