Birtingamynd sjálfbærni og lúxus í laxveiðiferðaþjónustu á Íslandi

Laxveiðiferðamennska á Íslandi er lítið rannsökuð. Þessi tegund ferðamennsku hefur lengi verið vinsæl og hefur farið ört vaxandi. Þróunin í greininni hefur orðið til þess að kröfur viðskiptavina um bættan aðbúnað og þjónustu hafa aukist vegna hækkunar á verði á veiðileyfum. Rekstraraðilar reyna að k...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hugrún Sara Maríusardóttir 1996-, Steinunn Guðbrandsdóttir 2000-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41374
Description
Summary:Laxveiðiferðamennska á Íslandi er lítið rannsökuð. Þessi tegund ferðamennsku hefur lengi verið vinsæl og hefur farið ört vaxandi. Þróunin í greininni hefur orðið til þess að kröfur viðskiptavina um bættan aðbúnað og þjónustu hafa aukist vegna hækkunar á verði á veiðileyfum. Rekstraraðilar reyna að koma til móts við þessa eftirspurn viðskiptavina með því að uppfæra aðstöðuna hjá sér í meiri lúxus aðstöðu. Með þessari uppfærslu á veiðistöðunum hafa sumir rekstraraðilarnir innleitt sjálfbærni í sinn rekstur en aðrir ekki lagt áherslu á það. Sjálfbærni er sífellt að verða mikilvægari þáttur í rekstri á öllum sviðum. Því er mikilvægt að verða að auknum kröfum ferðamanna um sjálfbærni á ferðamannastöðum. Í þessari rannsókn er skoðað hvernig rekstararaðilar laxveiðistaða hafa betrumbætt þjónustu sína með tilliti til sjálfbærni og aukinnar eftirspurnar eftir lúxus aðstöðu og aðbúnaði. Einnig er skoðað hvernig nýting innviða við laxveiðiár er allan ársins hring með tillit til lífsferils áfangastaða. Fræðilegur kafli rannsóknarinnar fjallar um laxveiðiferðamennsku á Íslandi og hvernig sjálfbærni spilar stóran þátt í ferðamennsku. Þá er laxveiðin tengd við lúxus og skoðað hvernig laxveiðiferðamennska er óneitanlega lúxusferðamennska. Rannsóknin byggir á aðferðum eigindlegra rannsóknaraðferða. Tekin voru sjö eigindleg hálfstöðluð viðtöl við rekstraraðila veiðistaða. Niðurstöður leiddu í ljós að aðaláherslan á sjálfbærni í greininni hefur verið á að vernda stofninn en lítil áhersla hefur verið lögð á sjálfbærni í rekstri veiðihúsanna. Salmon angling tourism in Iceland is a limitedly researched topic. This type of tourism has been popular for a long time and has been growing rapidly. Developments in the industry have led to an increase in customers' demands for improved facilities and services due to an increase in the price of fishing licenses. Supervisors try to meet this customer demand by upgrading their facilities to more luxurious facilities. With this upgrade of the fishing grounds, some supervisors have implemented ...