Óflekkað mannorð: Rétturinn til að bjóða sig fram og vera kjörinn

Markmið þessarar ritgerðar er tvíþætt, í fyrsta lagi verður leitast við að varpa ljósi á hvort að einstaklingur á reynslulausn teljist hafa óflekkað mannorð í skilningi 3. mgr. 6. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Í öðru lagi verður fjallað um hvaða réttindi liggja þar undir og að hvaða marki er heimil...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Tinna McKaylee Hrundardóttir 1996-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40632
Description
Summary:Markmið þessarar ritgerðar er tvíþætt, í fyrsta lagi verður leitast við að varpa ljósi á hvort að einstaklingur á reynslulausn teljist hafa óflekkað mannorð í skilningi 3. mgr. 6. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Í öðru lagi verður fjallað um hvaða réttindi liggja þar undir og að hvaða marki er heimilt að takmarka þau. Fjallað verður almennt um óflekkað mannorð, sögu þess og þróun í íslenskri löggjöf. Í því samhengi er nauðsynlegt að gera skil á hugtakinu uppreist æru og áhrif afnám lagaákvæða um uppreist æru á hugtakið óflekkað mannorð í skilningi þess sem skilyrði kjörgengis. Í kjölfarið gerir höfundur tilraun til að skýra reynslulausn og hvort að einstaklingur á reynslulausn teljist hafa lokið afplánun að fullu. Því næst verður gerð grein fyrir þeim réttindum sem eru undir í samræmi við þær alþjóðlegu skuldbindingar sem ríkið hefur undirgengist. Jafnframt verður fjallað um takmarkanir sem setja má þeim réttindum. Því næst verður farið stuttlega yfir ákvörðun kjörstjórnar Fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík, kæru frambjóðandans og úrskurð úrskurðarnefndar nr. 1/2022. Að lokum verður heildstæð ályktun dregin fram um hvort að einstaklingur á reynslulausn teljist hafa lokið afplánun að fullu í skilningi 3. mgr. 6. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og að hvaða marki heimilt er að skerða þann rétt manna að gefa kost á sér eða vera kjörinn samkvæmt þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem íslenska ríkið hefur gengist undir. Einnig verður niðurstaða leidd í ljós um hvort að sú takmörkun á framboðsréttinum sem óflekkað mannorð í 6. gr. kosningalaga nr. 112/2021 hljóðar á sé í samræmi við þær alþjóðlegu skuldbindingar sem um ræðir.