Borgin hennar. Tilveran í Reykjavík í nokkrum skáldsögum Þórunnar Elfu Magnúsdóttur
Ritgerð þessi fjallar um táknmyndirnar sem verða til um sveitina og borgina í bókmenntum. Hún fjallar um áhrifin sem nútímaborgin er talin hafa á sálarlíf fólks og hvernig hún er séð og lifuð – sem ópersónuleg og vélvædd eða sem veröld örvandi mannlífs og gæða. Fræðimennirnir Raymond Williams, Georg...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2022
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/40476 |
Summary: | Ritgerð þessi fjallar um táknmyndirnar sem verða til um sveitina og borgina í bókmenntum. Hún fjallar um áhrifin sem nútímaborgin er talin hafa á sálarlíf fólks og hvernig hún er séð og lifuð – sem ópersónuleg og vélvædd eða sem veröld örvandi mannlífs og gæða. Fræðimennirnir Raymond Williams, Georg Simmel og Walter Benjamin koma við sögu í tengslum við þennan hugmyndaheim. Þá er fjallað um stöðu og hlutskipti kvenna í samhengi borga, heimilis og almannarýmis. Hugað er að Reykjavík í þessu sambandi sem sögusviði í íslenskum bókmenntum en einkum hvernig rithöfundurinn Þórunn Elfa Magnúsdóttir miðlar tilverunni í borginni í skáldsögum sínum. |
---|