Burðarþolshönnun Súluness 15 : hönnun nokkurra burðareininga

Við Súlunes 15 á Arnarnesinu í Garðabæ stendur eitt af fallegri íbúðarhúsum Suðurlands, og þó víðar væri leitað, sem Kjartan heitinn Sveinsson byggingartæknifræðingur hannaði á sínum afkastamikla ferli. Húsnæði þetta inniheldur flesta þá byggingarhluta sem áhugavert er fyrir burðarþolshönnuð að reik...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigfús Kári Baldursson 1980-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40165
Description
Summary:Við Súlunes 15 á Arnarnesinu í Garðabæ stendur eitt af fallegri íbúðarhúsum Suðurlands, og þó víðar væri leitað, sem Kjartan heitinn Sveinsson byggingartæknifræðingur hannaði á sínum afkastamikla ferli. Húsnæði þetta inniheldur flesta þá byggingarhluta sem áhugavert er fyrir burðarþolshönnuð að reikna, svo sem súlur, svalir, milligólf og valmaþak, svo fátt sé nefnt. Hönnunarverkefni þetta felst í því að burðarþolshanna áðurnefnda byggingarhluta eftir þeim aðferðum sem kenndar eru í byggingartæknifræði við Háskólann í Reykjavík. Ekki voru allar teikningar aðgengilegar og því varð hluti verkefnisins að endurgera byggingarhluta í þeirri mynd sem hugnaðist höfundi. Í fyrri hlutanum er farið í gegnum þær forsendur sem hannað er eftir og niðurstöður útreikninga síðan kynntar. Í seinni hlutanum eru allir útreikningar ásamt útskýringum á þeim.