Löggæsla og eftirlitsmyndavélar

Eftirlitsmyndavélar hafa lengi gent mikilvægu hlutverki við framkvæmd löggæslustarfa. Þær hafa nýst við afbrotavarnir, við að auðkenna hluti og fólk sem og við leit að týndu fólki. Tilgangur þessa verkefnis var að greina þær lagaheimildir sem gilda um notkun lögreglu á eftirlitsmyndavélum. Lögreglan...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Kristín Guðmundsdóttir 1972-, Grétar Stefánsson 1987-, Árni Gunnar Ragnarsson 1991-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40103
Description
Summary:Eftirlitsmyndavélar hafa lengi gent mikilvægu hlutverki við framkvæmd löggæslustarfa. Þær hafa nýst við afbrotavarnir, við að auðkenna hluti og fólk sem og við leit að týndu fólki. Tilgangur þessa verkefnis var að greina þær lagaheimildir sem gilda um notkun lögreglu á eftirlitsmyndavélum. Lögreglan hefur starfrækt eftirlitsmyndavélar í miðborg Reykjavíkur síðan árið 1998. Þrátt fyrir það eru enn þann dag í dag engar afdráttarlausar lagaheimildir fyrir almennri notkun eftirlitsmyndavéla í löggæslutilgangi. Lagaheimildirnar byggja einna helst á ákvæðum lögreglulaga um hlutverk og skyldur lögreglu og á almennum reglum um heimildum um vinnslu persónuupplýsinga í persónuverndarlögum, sem nú heimfærist á lög um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi. Skoðuð var tölfræði yfir nýtingu lögreglu á upptökum úr eftirlitsmyndavélum í miðbæ Reykjavíkur. Bentu niðurstöðurnar til þess að upptökur séu almennt ekki mikið notaðar við rannsóknir sakamála. Af 1.850 málum árið 2019 voru upptökur einungis notaðar við rannsóknir 62 mála eða um 3%, sem er svipað og árið áður. Heimildir þær sem ná til notkunar lögreglu á eftirlitsmyndavélum og vinnslu upplýsinga úr þeim, voru skoðuð í ljósi þeirra tækfæra og áskorana sem lögreglan stendur frammi fyrir í nútímasamfélagi. Einnig var gerð grein fyrir helstu lagaheimildunum sem gilda um eftirlitsmyndavélar lögreglu á Norðurlöndunum. Í Finnlandi og Danmörku rekur lögreglan sérstakan gagnagrunn yfir eftirlitsmyndavélar, í þeim megintilgangi að flýta fyrir rannsóknum lögreglu við öflun sönnunargagna. CCTV (Closed-circuit television) has long been recognised as an important tool for law enforcement. It is used for crime prevention, to identify items or individuals and in non-crime cases such as searching for missing persons. The object of this thesis is to identify the legal basis on how the Icelandic police operates its CCTV system. The Reykjavík Metropolitian police has operated CCTV cameras in the city centre of Reykjavik since 1998. Despite that there are no clear or unequivocal ...