Maður og umhverfi: Áhrif loftlagsbreytinga á samfélög frumbyggja í norðri

Markmið þessarar ritgerðar er að gera grein fyrir hlutverki mannfræðinnar á sviði loftlagsmála, með sérstakri hliðsjón af hefðbundnum samfélögum í norðri. Ritgerðinni er skipt í fjóra kafla. Í fyrsta kafla er fjallað um samband manns og umhverfis eins og það birtist í skrifum fræðimanna. Í kafla tvö...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurbjörg Birgisdóttir 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3986
Description
Summary:Markmið þessarar ritgerðar er að gera grein fyrir hlutverki mannfræðinnar á sviði loftlagsmála, með sérstakri hliðsjón af hefðbundnum samfélögum í norðri. Ritgerðinni er skipt í fjóra kafla. Í fyrsta kafla er fjallað um samband manns og umhverfis eins og það birtist í skrifum fræðimanna. Í kafla tvö er rætt um viðbrögð mannfræðinnar við loftlagsbreytingum og það sem mannfræðingar hafa fram á að færa á því sviði. Í þriðja kafla verður litið yfir þær breytingar sem eiga sér stað á norðurslóðum af völdum loftlagsbreytinga, og áhrifa þessara breytinga á hefðbundin samfélög. Í fjórða, og síðasta kafla, verður rætt um sjálfbæra þróun og aðrar mögulegar lausnir á vandanum, með sérstakri hliðsjón af hefðbundinni þekkingu. Einnig verður rætt um mannréttindi og aktívisma, með mikilvægi þessarar þátta til sjálfákvörðunar og sjálfbærrar framtíðar að leiðarljósi.