Summary: | Þessi rannsóknarritgerð er 10 eininga lokaverkefni til B.Ed. gráðu í Leikskólakennarafræðum við Háskóla Íslands. Markmið hennar er að varpa ljósi á hvernig frjáls leikur, flæði og sköpun birtist í útinámi í einum leikskóla og hvert hlutverk kennarans sé í útinámi barna. Leitast er við að svara rannsóknarspurningunni: Hvernig birtast frjáls leikur, flæði og sköpun í útinámi og hvert er hlutverk kennara í útinámi leikskólabarna? Gerð var starfendarannsókn sem beindist að hlutverki kennarans í útinámi leikskólabarna með áherslu á frjálsan leik, flæði og sköpun. Vettvangsathugun fór fram í útinámstíma í leikskólanum Álfheimum á Selfossi, skráningar framkvæmdar með myndatöku og myndböndum og samtöl og atburðir skráðir upp úr þeim. Stuðst var við kenningar Olofssons um frjálsan leik, Csikszentmihalyi um Flæði og kenningu Dewey um nám í verki. Einnig er fjallað um hugleiðingar Jordet um útikennslu, Fröbel og Vygotsky um nám og leik og um fjölgreindarkenningu Gardners. Megin niðurstöður voru þær að þátttaka og áhugi séu lykilþættir í útinámi barna og að hlutverk kennara sé að styðja þá og efla.
|