Summary: | Markmið þessarar rannsóknar er að athuga vefnað á Íslandi með tilkomu fyrsta rafræna vefstólsins til landsins árið 2016. Nokkrir þátttakendur námskeiðsins ,,Umsýsla, meðferð og notkun á TC2 stafrænum vefstól” eru teknir tali en námskeiðið er kynning Textilmiðstöðvar Íslands á Thread Control 2 vefstólnum og hefur verið haldið nokkuð reglulega á Blöndósi allt frá kaupum á honum. Tilgangur rannsóknar er einnig að upplýsa um stöðu vefnaðar hérlendis með hliðsjón af hugmyndafræði 21.aldarinnar, nýsköpun og sjálfbærni til að athuga hvort þessir þættir endurveki ekki áhuga á vefnaði nytjalistar með smáframleiðslu í huga eða öðru handverki listiðnaðar. Forsendur eru fræðilegar heimildir um vefnað og samtímagögn ásamt viðtölum. Reynsla viðmælenda þekur töluvert umfang viðfangefnis allt frá vefnaði sem handverkslist unnin á eigin verkstæði yfir í sérþekkingu á sviði textíls, grafískrar hönnunar og fatahönnunar. Þessi rannsókn er um vefnað þar sem hans er getið í sögulegum heimildum og hvar honum er að skjóta upp á yfirborðið eftir áralanga þögn. Niðurstöður leiða í ljós að rafrænn vefstóll til nokkura ára hefur síður en svo dregið úr áhuga á handverki listiðnaðar því notkun stólsins krefjist einnig handverks og hins listræna mats. Vonast er til að nýsköpun og sjálfbærni aukist út frá forsendum bandþróunar og nýsköpunar í gerð og þróun bands. Gildi handverks haldi sér því fæstir hafi hugsað sér að fara út í framleiðslu en telja vefstóllinn afar hentugan fyrir fyrstu gerð vefnaðar eða það sem kallað er ,,prototypugerð“, með framleiðslu erlendis þá í huga. Viðmælendur voru hrifnastir af myndvefnaðarmögleikum stólsins, Jacquard vefnaðinum og sjálfvirknimunstur uppbindinga vefnaðar. Mest letjandi þátturinn við meiri sköpun á stólnum væri hins vegar ónóg tölvuþekking vefnaðaráhugafólks sem hrjáði marga. Viðmælendur vilja gjarnan fá stól í mesta þéttbýliskjarnann til að efla vefnaðinn. The objective of this research is to investigate weaving in Iceland on the arrival of the first digital weaving loom to the country in 2016. ...
|