Mikilvægi þátttöku barna á frístundaheimilum í Reykjavík

Markmiðið með þessari ritgerð var að varpa ljósi á mikilvægi þátttöku barna frístundaheimilum og þá eflandi þætti sem frístund hefur á þroska barna á aldrinum 6-9 ára. Frístundaheimili er ekki geymsla fyrir börnin heldur vel skipulagt starf sem gefur börnum marga möguleika á því að þroskast og gera...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Aldís Þorvaldsdóttir 1997-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/39589
Description
Summary:Markmiðið með þessari ritgerð var að varpa ljósi á mikilvægi þátttöku barna frístundaheimilum og þá eflandi þætti sem frístund hefur á þroska barna á aldrinum 6-9 ára. Frístundaheimili er ekki geymsla fyrir börnin heldur vel skipulagt starf sem gefur börnum marga möguleika á því að þroskast og gera þau tilbúin til að stíga út í samfélagið. Ritgerð þessi er hefðbundin rannsóknarritgerð, þar sem aflað var gagna úr fræðilegum heimildum eins og starfsemi frístundar, félagsfærni og samskiptahærni, leikur og sköpun, ásamt kenningunum fræðimannanna á borði við Vygotsky, Piaget og Gardner. Fræðilega efnið var haft til hliðsjónar og samanburðar við skrif á ritgerðinni. Leitað verður svara við rannsóknarspurningunni: Getur þátttaka barna á frístundaheimilum stuðlað að betri félagsfærni og samskiptahæfni barna, ef svo er á hvaða hátt? Þátttaka í skipulögðu starfi frístundaheimila stuðlar að betri þroska barna og aðstoðar þau við að efla hæfileika sína í leik innan frístundaheimilanna. Virkt lýðræði gerir þeim kleift að hafa skoðanir á hlutum, koma sínum hugmyndum og hugsunum á framfæri, með aðstoð þeirra sem starfa á frístundaheimilinu. Frelsi barna er mikilvægur þáttur í því að þau finni sjálft sig og sitt áhugasvið svo þau muni finna sinn stað innan samfélagsins.