Börn og foreldrar : þjónusta Fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar við ung fötluð börn og foreldra þeirra

Verkefnið fjallar um þjónustu Fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar við ung fötluð börn og foreldra þeirra. Í því skyni að varpa ljósi á það sem vel er gert og það sem betur má fara í félagslegri þjónustu var byrjað á því að fræðast um sviðið út frá lagalegri umgjörð og rannsóknum. Einnig félagslegum sjó...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Helgadóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3946
Description
Summary:Verkefnið fjallar um þjónustu Fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar við ung fötluð börn og foreldra þeirra. Í því skyni að varpa ljósi á það sem vel er gert og það sem betur má fara í félagslegri þjónustu var byrjað á því að fræðast um sviðið út frá lagalegri umgjörð og rannsóknum. Einnig félagslegum sjónarhornum á fötlun, snemmtækri íhlutun og fjölskyldumiðaðri þjónustu þar sem horft er á þarfir einstaklings út frá félagslegu umhverfi og þjónusta við barn og fjölskyldu byggist á víðum skilningi á raunverulegum þörfum. Síðan var upplýsinga aflað með þátttökuathugun á Fjölskyldudeild, rituðum heimildum og viðtölum við tvo foreldra fatlaðra barna í leikskóla og tvo starfsmenn Fjölskyldudeildar. Niðurstöður sýndu að vel er staðið að þjónustu Fjölskyldudeildar við ung fötluð börn í samræmi við æskileg viðmið laga og hugmyndafræði og að foreldrar eru almennt ánægðir með þjónustuna og umgjörð hennar. Huga þarf hins vegar betur að persónulegum stuðningi við foreldra og ráðgjöf í upphafi, hvernig best megi koma upplýsingum á framfæri við foreldra og efla enn frekar þátttöku þeirra í þjónustu við barnið. Lykilorð: Félagsleg sjónarhorn á fötlun, fjölskyldumiðuð þjónusta.