Jón Kristinsson : hugmyndafræði og hönnun

Jón Kristinsson er íslenskur arkitekt sem hefur verið titlaður faðir sjálfbærra bygginga en hann hefur mestan hluta æfi sinnar starfað í Hollandi. Hér verður farið yfir líf hans, hugmyndafræði og feril ásamt því að kanna tengsl þeirra við íslenskar aðstæður. Loks verður litið til framtíðar í arkitek...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristrún Brynja Þorsteinsdóttir 1989-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/39238
Description
Summary:Jón Kristinsson er íslenskur arkitekt sem hefur verið titlaður faðir sjálfbærra bygginga en hann hefur mestan hluta æfi sinnar starfað í Hollandi. Hér verður farið yfir líf hans, hugmyndafræði og feril ásamt því að kanna tengsl þeirra við íslenskar aðstæður. Loks verður litið til framtíðar í arkitektúr út frá hugmyndafræði Jóns en hann er frumkvöðull á sviði sjálfbærni og hefur unnið með hana að leiðarljósi sem arkitekt og uppfinningamaður. Við leitum svara við rannsóknarspurningunni: Hvernig á hugmyndafræði Jóns Kristinssonar við í sjálfbærum arkitektúr þegar horft er til framtíðarinnar? Stuðst er við fjölmiðla upptökur, bækur og greinar ásamt samskiptum höfundar við Jón sjálfan. Hugmyndafræði Jóns snýst um að nálgast byggingar heildrænt, sem hlekkur í keðju frá sólinni að iðrum jarðar. Allt þar á milli eru kraftar og ferli sem þarf að skoða og taka inn í hönnun byggingar svo hún standist tímans tönn. Jón telur mikilvægt að hugsa um komandi kynslóðir og áhrif nútímans á mögulega framtíð þeirra. Af helstu verkum Jóns má nefna Schiedam húsin, Villa Flora, Öldrunarheimili í Hollandi og hús úr gosefnum í Bjarmalandi 11. Uppfinningar hans eru Fresh-r og HCCV loftræsikerfi ásamt úthafs orkuverinu Ocean Wave Power Station. Jón Kristinsson, said to be the father of sustainable buildings, is an Icelandic architect who has mainly lived and worked in Holland. This thesis covers his life, ideology and career along with exploring their connections to Iceland. Furthermore a future outlook is proposed based on his ideology. Jón is a pioneer in the field of sustainability, which has been his main working focus. We seek to answer the research question: How does the ideology of Jón Kristinsson apply to sustainable architecture with respect to the future? Along with the authors correspondence with Jón himself, the thesis is based on press recordings, books and articles. Jón’s ideology is based on a holistic approach to buildings, spanning from the sun to the earths core. One has to consider all the forces and processes along ...