Grenndarkennsla í leikskólum : hvernig birtist grenndarkennsla í leikskólum?

Í þessu verkefni sem er lokaverkefni til B.Ed. prófs í kennarafræðum á sviði leikskólakennslu. Markmiðið með þessu verkefni er að skoða hvernig grenndarkennsla birtist í leikskólum hér á landi. Auk þess sem verkefnabanki er lagður fram með það að markmiði að efla grenndarkennslu í leikskólum og gera...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Díana Björk Friðriksdóttir 1999-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/39000
Description
Summary:Í þessu verkefni sem er lokaverkefni til B.Ed. prófs í kennarafræðum á sviði leikskólakennslu. Markmiðið með þessu verkefni er að skoða hvernig grenndarkennsla birtist í leikskólum hér á landi. Auk þess sem verkefnabanki er lagður fram með það að markmiði að efla grenndarkennslu í leikskólum og gera kennurum og öðru starfsfólki leikskóla auðveldara að vinna með grenndarkennslu. Verkefnabankinn getur nýst í starfi á leikskólum alls staðar á landinu. Verkefnin í verkefnabankanum henta ýmist ákveðnum aldri eða aldursbili eða öllum aldurshópum á leikskólum. Í verkefninu verður fjallað um merkingu hugtakanna grenndarkennsla og grenndarfræði. Fjölbreyttar skilgreiningar á útikennslu verða skoðaðar auk þess sem kafað verður í hvort munur sé á útikennslu og grenndarkennslu. Grenndarkennsla hefur ólíka birtingarmynd í aðalnámskrám leikskóla frá 1999 og 2011 og verður það skoðað nánar í verkefninu. Hefur grenndarkennsla verið lengi innan menntakerfisins? Leitað verður svara við þeirri spurningu. Birting grenndarkennslu í leikskólum verður einnig skoðuð. Kenningar fjögurra fræðimanna verða skoðaðar, þrátt fyrir að þær kenningar tengist ekki allar beint grenndarkennslu tengjast þær menntunarfræðum. Þess vegna tengjast þær öllu námi og þroska barna. Náttúru- og útikennsla hafa einnig áhrif á heilsu og þroska barna, verkefnið sýnir fram á hver þessi áhrif eru. This project is a final project to B.Ed. degree in pedagogy in the field of kindergarten teaching. The goal with this project is to look at how local studies appears in kindergarten in Iceland. In addition, a project bank is put forward with the goal to improve local studies in kindergarten and make it easier for teachers and other personnel in kindergarten to work with local studies. The project bank can be used in kindergartens all over the country. The projects in the projects bank can be used either for a spesific age or for all ages in kindergartens. The project will discuss the meaning of the concept local studies. Various definitions on outdoor teaching will be ...