Summary: | Sviðsverk Marmarabarnanna, Eyður, var frumsýnt 14. janúar árið 2020 á stóra sviði Þjóðleikhússins. Verkið var sýnt tvisvar, og í seinna skiptið fyrir stútfullum sal áhorfenda. Það þótti óvenjulegt fyrir sjálfstæðan sviðslistahóp sem vinnur með póstdramatískar aðferðir; samsköpun, spuna, sjónrænu og dans, þar sem texti er jafn stór hluti af verkinu og allir aðrir þættir; leikmynd, búningar, myndir, físík. Í ritgerðinni verður farið yfir aðferðir hópsins og hvernig þær eru frábrugðnar hefðbundnari leikhúsaðferðum í stóru leikhúsum landsins. Í ritgerðinni verður sviðsverkið Eyður skoðað í menningarfræðilegu samhengi, hvaða áhrif sýningin hafði á sviðslistasenuna, s.s. tilnefningar og sigrar sýningarinnar á Grímunni og orðræðuna í kringum það, pólitík og gagnrýni á verkið. Var þessi sýning stórt skref í einhverja átt, og þá hvaða átt? Er auðveldara aðgengi svona verka að stóru leikhúsum landsins en var áður? Eru leikhúsin orðin opnari fyrir samsköpun, sjónrænu leikhúsi og sviðslistum þar sem leiklist og dans skarast, póstdramatík? Hvernig fellur vinnufyrirkomulag samsköpunar að hefðbundnu vinnufyrirkomulagi stofnanaleikhúsa? Er Ísland eftir á hvað varðar þennan þátt sviðslista? Af hverju taka leikhúsin ekki meiri áhættu og af hverju tók Ari Matthíasson, þáverandi þjóðleikhússtjóri, áhættu með Marmarabörnin? Einnig verður afstaða hópsins til stóru leikhúsanna skoðuð, hvert er/var ætlunarverk þeirra? Marble Crowd’s theatre piece, Eyður, was premiered on January 14, 2020 on the main stage of the National Theatre of Iceland. Eyður was performed twice, the second time in front of a fully packed auditorium. That is quite unusual for an independent performing arts group working with postdramatic techniques; devising methods, improvisation, dance and visual theatre, where the text does not hold the main narrative of the performance, but is only as important as any other element of the piece; set, costumes, physicality and visual images. In this essay Marble Crowd’s methods will be explored and how they differ from more ...
|